Hádegisfundur í Valsheimilinu Hlíðarenda, sal 2 á annarri hæð, þriðjudaginn 10. febrúar frá kl. 12 til 13.


Þriðjudaginn 10. febrúar nk. stendur Geðhjálp fyrir hádegisfundi í Valsheimilinu Hlíðarenda, sal 2 á annarri hæð, um fordóma Íslendinga gagnvart andlegum áskorunum. Þar mun Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, kynna nýjar niðurstöður úr rannsókn sem var framkvæmd 2025, sem var fjármögnuð var af Geðhjálp, og bera saman við niðurstöður úr sambærilegri rannsókn sem Geðhjálp stóð að tveimur árum fyrr.
Auk Sigrúnar mun Alexander Steingrímsson, verkefnastjóri Unghuga og nýsköpunar hjá Hugarafli og jafningjastuðningsaðili, vera með stutt erindi um lifaða reynslu og fordóma. Grímur Atlason mun einnig flytja stutt erindi um verkefni Geðhjálpar sl. ár sem hafa miðað að því að draga úr fordómum. Í lokin verða umræður. Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar og kaffi.
• 12:00 Sigrún Ólafsdóttir
• 12:15 Alexander Steingrímsson
• 12:25 Grímur Atlason
• 12:35 Umræður
Fordómar gagnvart einstaklingum með geðrænan vanda og/eða fíknivanda hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklinga og samfélög. Árið 2006 voru fordómar almennings á Íslandi mældir í fyrsta skipti, sem hluti af alþjóðlegri rannsókn, og árið 2022 til 2023 var sú mæling endurtekin af Geðhjálp undir forystu Sigrúnar Ólafsdóttur prófessors í félagsfræði við HÍ, sem einnig stýrði alþjóðlegu rannsókninni 2006. Var ákveðið að endurtaka mælinguna á tveggja ára fresti og er kynning núna afrakstur þeirrar mælingar. Hún var aftur framkvæmd undir forystu Sigrúnar og mun Geðhjálp í framhaldinu standa fyrir hádegisfundum næstu mánuði til að kynna niðurstöðurnar betur.