Sveinn Rúnar er fæddur 1947 og hefur verið heimilislæknir og aktivisti eins lengi og elstu menn muna. Hann er tvígiftur, á fimm uppkomin börn og sjö barnabörn. Sveinn glímdi við geðlæknakerfið og var á árbili iðulega nauðungarvistaður með látum, en hefur gengið laus frá 1985. Það var um það leyti sem honum auðnaðist að leggja áfengi og vímuefni til hliðar, með guðs og góðra manna hjálp. Sveinn Rúnar hefur allan þennan tíma verið mjög virkur í sjálfshjálparhópum. Einnig í stjórn Geðhjálpar, í samtals nærri 13 ár.