Sunnudaginn 10. september kl.20 verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni í Reykjavík til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Dagskrá :
• Sr. Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju flytur hugvekju
• Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson flytur tónlistaratriði.
• Sigurþóra Bergsdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni.
• Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Að kyrrðarstundinni standa Geðhjálp, Geðsvið Landspítala, Hugarafl, Landlæknisembættið, Minningarsjóður Orra Ómarssonar, Ný dögun, Pieta, Rauði kross Íslands og Þjóðkirkjan.
Einnig verða kyrrðarstundir haldnar á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjanesbæ.
Kyrrðarstundirnar eru öllum opnar og aðgangur er ókeypis.