11. nóvember 2025

85.270 bensínlítrar fram á veginn

Í gær fór fram fimmta úthlutun úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Þetta árið fengu 19 verkefni styrk sem nemur alls 25.550.000 kr. Slík upphæð myndi duga fyrir rúmlega 85.000 lítrum af bensíni! Hvert getum við komist fyrir tilstuðlan slíkrar innspýtingar - hvernig getur slík fjárhæð stutt við nýsköpunarverkefni og hugmyndir sem stuðla að betri geðheilsu landsmanna?

Landssamtökin Geðhjálp stofnuðu Styrktarsjóð geðheilbrigðis í maí 2021. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna og rannsókna sem geta bætt geðheilbrigði landsmanna og skilning á málaflokknum. Þriggja manna stjórn stýrir sjóðnum og fimm manna fagráð fjallar um umsóknir. Stofnframlag sjóðsins kom í kjölfar sölu húsnæðis Geðhjálpar. Stjórn Geðhjálpar hefur síðan veitt frekari framlög í sjóðinn fyrir tilstilli stuðnings almennings. Það er okkar trú að með því að setja fjármuni, sem Geðhjálp þarf ekki að nota til rekstrar,  í sjóðinn gerum við mest gagn fyrir heildina – okkur öll.

Síðastliðinn apríl hélt Skúli Helgason söfnunartónleikana Geggjað þar sem fram komu listamennirnir Mugison, GDRN, Ragga Gísla ásamt hljómsveit, Emmsjé Gauti, Inspector Spacetime og Ra:tio. Allur ágóði af tónleikahaldinu rann í Styrktarsjóð geðheilbrigðis auk þess sem safnað var framlögum frá bakhjörlum og fyrirtækjum. 3,4 milljónir söfnuðust og runnu beint í úthlutun þessa árs. Við erum þakklát fyrir stuðninginn sem hefur gert okkur kleift að styrkja enn fleiri verkefni einstaklinga, frjálsra félagasamtaka og stofnana sem tengjast eflingu geðheilbrigðis barna og ungmenna á Íslandi þetta árið.

Okkur bárust langtum fleiri styrktarumsóknir en kostur var að styrkja. Alls bárust 84 umsóknir til sjóðsins, samtals að upphæð rúmlega 250 m.kr., og hafa aldrei verið fleiri. Í ár var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á verkefni, sem sneru að geðheilsu ungs fólks, og úthlutun ársins ber þess glöggt merki. Einnig var lagt mat á að hversu miklu leyti hugmyndin er sprottin út frá, og unnin af fólki með persónulega reynslu af andlegum áskorunum, og sama gildir um aðkomu aðstandenda.

Við teljum það heillavænlegast að nýsköpun í þessum málaflokki sé sprottin frá þeim sem lifa og hrærast í aðstæðunum dagsdaglega. Þannig séum við líklegri til að vinna út frá raunverulegum þörfum hópsins og vinna með rót vandans. Einnig er hugað að því hversu mikil nýsköpun felist í hugmyndinni, listrænu, vísindalegu, samfélagslegu og siðrænu gildi auk kynja- og jafnréttissjónarmiða, svo fátt eitt sé nefnt.

Þörfin fyrir nýsköpun í geðheilbrigðisgeiranum, og velferðarþjónustu almennt, er ljós. Sífellt fleira fólk leitar sér aðstoðar og lýsir sárri vanlíðan. Líkt og kemur fram í skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunar frá 2022; þá er geðheilbrigðisvandinn skýr en viðbrögð kerfisins eru ófullnægjandi.

Það að fjárfesta í geðheilsu er fjármunum vel varið, og stuðlar að betra lífi og framtíð fyrir okkur öll. Við þurfum umbreytingu í hvernig við nálgumst og vinnum að geðheilsu. Við þurfum aukna áherslu á heilsueflingu og forvarnir. Umbreytt geðheilbrigðisnálgun snýst í auknum mæli um samfélagsbundna þjónustu og stuðning fyrir öll sem þurfa á slíku að halda (WHO, 2022).

Í leiðbeinandi riti Alþjóða heilbrigðismálastofnunar, sem kom út fyrr á árinu, er kallað eftir geðheilbrigðisþjónustu sem styður við lögræði, felur ekki í sér þvingun heldur virkri þátttöku og hlutdeild í samfélaginu. Þörf sé á að vinna með félagslega og kerfisbundna þætti á borð við fátækt, ótryggt húsnæði, atvinnuleysi og mismunun - til að stuðla að bættri geðheilsu okkar allra (WHO, 2025).

Við vonumst til að verkefnin sem hlutu styrk frá Styrktarsjóði geðheilbrigðis verði liður í þessari breyttu nálgun. Sjóðurinn er okkar framlag til að stuðla að aukinni nýsköpun og framþróun innan geðheilbrigðismála og vitundarvakningu meðal almennings. Erindið hefur aldrei verið brýnna.

Svava Arnardóttir
Formaður Geðhjálpar
Formaður Styrktarsjóðs geðheilbrigðis

Hægt er að kynna sér Styrktarsjóð geðheilbrigðis frekar á gedsjodur.is.


Heimildir:

Alþjóða heilbrigðismálastofnun WHO (2022). World Mental Health Report: Transforming Mental Health for All: This comprehensive report, published in 2022, argues for a fundamental transformation of how mental health is viewed and treated globally. It calls for stakeholders to deepen commitment to mental health, reshape environments, and strengthen care systems, advocating for new approaches and innovations. https://www.who.int/publications/i/item/9789240050860

Alþjóða heilbrigðismálastofnun WHO (2025). Guidance on mental health policy and strategic action plans. https://www.who.int/publications/i/item/9789240106796

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram