6. mars 2026

Bakvið merkimiðana – fordómar og raunveruleikinn í kringum fíkn

Hádegisfundur á Kjarvalsstöðum þriðjudaginn 17. mars frá kl. 12 til 13.

Niðurstöður könnunar kynntar um fordóma gagnvart einstaklingum sem kljást við fíkn.

Þriðjudaginn 17. mars nk. stendur Geðhjálp fyrir hádegisfundi á Kjarvalsstöðum um fordóma Íslendinga gagnvart andlegum áskorunum. Þar mun Kári Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands, kynna nýjar niðurstöður úr rannsókn sem var framkvæmd 2025, sem var fjármögnuð var af Geðhjálp. Kári mun skoða sérstaklega fordóma gagnvart einstaklingum sem kljást við fíkn.

Auk Kára mun Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtakanna, vera með stutt erindi og einstaklingur með lifaða reynslu deilir henni. Í lokin verða umræður. Boðið verður upp á kaffi. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Dagskrá

• 12:00 Kári Kristinsson frá Háskóla Íslands
• 12:15 Elías Guðmundsson frá Krýsuvík
• 12:25 Aðili segir frá reynslu sinni
• 12:35 Umræður

Fordómar gagnvart einstaklingum með geðrænan vanda og/eða fíknivanda hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklinga og samfélög. Árið 2006 voru fordómar almennings á Íslandi mældir í fyrsta skipti, sem hluti af alþjóðlegri rannsókn, og árið 2022 til 2023 var sú mæling endurtekin af Geðhjálp undir forystu Sigrúnar Ólafsdóttur prófessors í félagsfræði við HÍ, sem einnig stýrði alþjóðlegu rannsókninni 2006. Var ákveðið að endurtaka mælinguna á tveggja ára fresti og er kynning núna afrakstur þeirrar mælingar. Hún var aftur framkvæmd undir forystu Sigrúnar og mun Geðhjálp í framhaldinu standa fyrir hádegisfundum næstu mánuði og fara betur yfir einstaka þætti könnunarinnar.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram