Fundur á Kjarvalsstöðum í fundarsalnum Grjóti þriðjudaginn 26. maí frá kl. 12:00 til 13:00 þar sem farið verður yfir niðurstöður könnunar um fordóma gagnvart einstaklingum með geðrænar áskoranir. Að þessu sinni verður horft til bata annars vegar og birtingarmyndar fordóma hins vegar. Það er að gefnu tilefni sem birtingarmynd fordóma verður gefin sérstakur gaumur á fundinum.


Þriðjudaginn 26. maí nk. stendur Geðhjálp fyrir fundi á Kjarvalsstöðum um fordóma Íslendinga gagnvart andlegum áskorunum. Þar mun Sigrún Ólafsdóttir prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands kynna niðurstöður úr rannsókn sem var framkvæmd 2025 og líta til batamiðaðra þátta. Rannsóknin var gerð að frumkvæði Geðhjálpar sem jafnframt fjármagnaði hana.
Auk Sigrúnar mun Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar vera með stutt erindi um birtingamynd fordóma og í lokin verða umræður. Boðið verður upp á kaffi. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
• 12:00 Sigrún Ólafsdóttir frá Háskóla Íslands
• 12:20 Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar
• 12:35 Umræður
Fordómar gagnvart einstaklingum með geðrænan vanda og/eða fíknivanda hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklinga og samfélög. Árið 2006 voru fordómar almennings á Íslandi mældir í fyrsta skipti, sem hluti af alþjóðlegri rannsókn, og árið 2022 til 2023 var sú mæling endurtekin af Geðhjálp undir forystu Sigrúnar Ólafsdóttur prófessors í félagsfræði við HÍ, sem einnig stýrði alþjóðlegu rannsókninni 2006. Var ákveðið að endurtaka mælinguna á tveggja ára fresti og er kynning núna afrakstur þeirrar mælingar. Hún var aftur framkvæmd undir forystu Sigrúnar og mun Geðhjálp í framhaldinu standa fyrir hádegisfundum næstu mánuði og fara betur yfir einstaka þætti könnunarinnar.