Þegar dimmir yfir í líðan okkar getur verið erfitt að muna hvað hjálpar. Í tilefni af almyrkvanum 12. ágúst viljum við í Geðhjálp minna á mikilvægi þess að þekkja eigin bjargráð og leita stuðnings þegar á reynir.
Á vefsíðunni almyrkvi.gedhjalp.is er að finna upplýsingar um hvað gefur fólki styrk, fyrstu merkin vanlíðan, bjargráð og lítil skref sem hægt er að taka að bættri líðan.
Á vefsíðunni er einnig hægt að taka próf til þess að kanna hvers konar bjargráð gætu hjálpað þér, upplýsingar um hvað getur hjálpað ef það skyggir hjá þér eða aðstandendum þínum, sem og þá þjónustu sem Geðhjálp býður upp á.