Við höfum öll þá sammannlegu þörf fyrir að finna að við séum hluti af einhverju stærra, að það sem við gerum skipti máli og að við tilheyrum. Við myndum tengsl við annað fólk byggt á þeirri sjálfsmynd sem við höfum þróað með okkur og hugmyndum okkar um hver við erum.
Mörg okkar þekkja það að sýna einungis ákveðnar hliðar á okkur í tilteknum hópum – og léttinn þegar við finnum öruggt umhverfi þar sem fólk skilur okkur, þar sem við þurfum ekki að bera einhvers konar grímu (e. masking) eða sýndarsjálf heldur getum verið samkvæm okkur sjálfum og engu að síður viðurkennd sem mikilvægur hluti af heildinni.
Það að tilheyra skiptir sköpum. Við þurfum að trúa og finna að það að við séum á þessari jörð hafi áhrif. Sum hafa mögulega aldrei íhugað þennan þátt markvisst en hafa engu að síður leitað uppi félagshópa með fólki sem deilir sambærilegum áhugamálum og lífsgildum. Við sækjum í staði þar sem við getum blómstrað, dafnað og þrifist.
En hvað um þau sem eru jaðarsett og útskúfuð úr þjóðfélaginu á einn eða annan hátt? Til að mynda sökum geðrænna erfiðleika, litarháttar, uppruna, kynhneigðar, kyntjáningar, fátæktar eða annarrar færni en gengur og gerist?
Með aukinni skautun í samfélagsumræðu og rótgrónum fordómum finnur jaðarsett fólk sífellt færri staði þar sem það getur raunverulega tilheyrt. Okkur er gert að passa í þröngt skilgreint box hegðunar, útlits, virkni og áhugamála sem byggir á neyslukapphlaupi nýfrjálshyggjunnar og ótta við það óhefðbundna.
Þetta box þrengir æ meira að okkur og færri passa í raun og veru innan veggja þess. Við reynum hvað við getum, brennum út, erum ósamkvæm sjálfum okkur og gildum okkar og finnum aukna togstreitu milli þess hver samfélagið gerir ráð fyrir að við séum og þess hver við erum í raun og veru.
Í reynd er boxið – samfélagslega samþykktu normin – mannanna smíð. Við getum endurhugsað og breytt þessum hugmyndum. Það er gríðarlega mikilvægt að skapa samfélag þar sem við höfum alvöru tækifæri til að tilheyra á okkar forsendum. Við verðum aldrei öll eins en það er mun fleira sem sameinar okkur en sundrar.
Við getum æft okkur í einlægri forvitni, rækt að áhuga á að skilja ólíkt fólk og hlustað eftir fjölbreyttum lífssögum og sjónarhornum. Í Geðhjálparblaðinu 2026 beinum við sjónum að leiðum til að tilheyra, aðferðum sem lofa góðu og stuðla að því að við búum við betri geðheilsu.
Mig langar að ljúka þessum leiðara með til vitnunum í þrjár af greinum blaðsins sem mér þóttu viðeigandi og lúta að því að tilheyra og byggja betra samfélag fyrir okkur öll:
„Það sem við sem samfélag getum gert er að tileinka okkur þann skilning að við séum öll berskjölduð fyrir alvarlegum geðrænum áföllum þegar erfiðir atburðir mæta okkur í lífinu. Sá skilningur ýtir undir samkennd.“ – Robert Whitaker
„Við þurfum öll á stuðningi að halda á einhverjum tímabilum í okkar lífi,“ sagði Katla Stefánsdóttir og lagði áherslu á mikilvægi þess að ganga ekki út frá því að fólk þurfi stuðning til frambúðar þó að það sé að fara í gegnum erfið tímabil í lífinu.
„Svo er líka gott að minna sig á það að þrátt fyrir að fólk standi frammi fyrir áskorunum í lífinu þá er það samt áfram sama fólkið, það á sér enn sömu drauma og vill halda sínum lífsstíl áfram.“
„Ef við höfum ekki enn kynnst þessari hlið veruleikans eða fundið okkur í þessum sporum erum við bara einu áfalli frá því að þurfa á þessari þjónustu að halda sjálf,“ sagði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Við eigum rétt á því að tilheyra. Það er eina leiðin til að við þrífumst sem einstaklingar, sem hópar, sem samfélag.
Svava Arnardóttir,
formaður Geðhjálpar