Geðhjálparblaðið 2026 er komið út. Í inngangi blaðsins fjallar Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, um sameiginlega mannlega þörf okkar fyrir að tilheyra einhverju stærra, finna að það sem við gerum skipti máli og vera hluti af heild.

Að venju er fjölbreytt og framsækið efni um geðheilbrigðismál að finna í blaðinu. Meðal annars er rætt við Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, um hönnun nýs geðþjónustuhúss. Hann leggur áherslu á mikilvægi skýrra markmiða og aðkomu ólíkra hópa að ákvörðunum, þar á meðal notenda þjónustunnar, starfsfólks og aðstandenda.
Páll Matthíasson geðlæknir segir að með tilkomu nýs geðþjónustuhúss verði hætt að nota eldri geðdeildir spítalans, sem séu löngu úreltar og standist hvorki kröfur til nútímalegrar hönnunar geðdeilda né kröfur um öryggi sjúklinga. Hann bendir jafnframt á að nútímahönnun geðsjúkrahúsa taki mið af bata og bataferli en að nálægð við sjúkrahús sé einnig mikilvæg.
Sigríður Elín Ásgeirsdóttir situr í stjórn Ský – Félags fólks með Long Covid. Félagið er sjúklingafélag fólks sem glímir við skaða af völdum Covid-19, hvort sem hann tengist bóluefnum eða smiti, og skyldra og afleiddra sjúkdóma á borð við POTS og ME. Þessir sjúkdómar eru oft settir undir regnhlífarhugtakið langvinnt Covid.
Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, veiktist alvarlega af Covid-19 og glímdi við langvinnt Covid í nokkur ár. Á þeim tíma bjó hún við mikla óvissu um framtíðina.
Í lokaritgerð Kötlu Stefánsdóttur til MA-prófs í fötlunarfræði við Háskóla Íslands (2022), sem ber titilinn Tilvera án tilkalls – Reynsla íbúa í íbúðakjörnum fyrir fólk með geðfatlanir á vegum Reykjavíkurborgar af sjálfstæðu lífi, fangar hún hráan og einlægan veruleika viðmælenda sinna. Í blaðinu er rætt við hana um rannsóknina, hugtökin sem hún byggir á og þær breytingar sem hún telur nauðsynlegar.
Úrræði fyrir fólk með geðrænar áskoranir mæta gjarnan andstöðu í nærsamfélaginu, þar sem fólk telur þjónustuna ekki eiga heima í sínu nærumhverfi. Í blaðinu er fjallað um hugtakið NIMBY, skammstöfun á enska orðasambandinu Not In My Backyard, sem mætti þýða sem „ekki í mínum bakgarði“. Hugtakið er sett í íslenskt samhengi í samtali við Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Samhjálpar.
Þá er sagt frá ráðstefnunni Open Dialogue Meeting Iceland 2026, sem Hugarafl stóð fyrir. Þar var fjallað um samræðunálgun í meðferð geðrofs og mikilvægi þess að innleiða Open Dialogue í geðheilbrigðisþjónustu. Einnig er greint frá ferðalagi Geðhjálpar um landið, þar sem fundað var með nemendum í efstu bekkjum grunnskóla um líðan þeirra og veruleika ungmenna á hverjum stað.
Í blaðinu er auk þess að finna umfjöllun um bækurnar Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson og Áfall, hvað svo? eftir Sigrúnu Sigurðardóttur.
Meðal aðalfyrirlesara á Open Dialogue-ráðstefnunni var bandaríski rannsóknarblaðamaðurinn og rithöfundurinn Robert Whitaker. Í erindi sínu leitaðist hann við að ögra viðteknum hugmyndum og vekja áheyrendur til umhugsunar. Hann spurði meðal annars hvort Open Dialogue hefði í raun valdið straumhvörfum í geðlækningum eða hvort aðferðin væri fyrst og fremst notuð sem viðbót við hefðbundna lyfjameðferð.
Maria Ingström, lyflæknir og rithöfundur, var 25 ára þegar hún fékk geðrofskennt oflætiskast og var nauðungarvistuð. Meðan á meðferðinni stóð var hún haldið niðri í rúmi og henni gefin geðrofslyf. Hún náði bata eftir að hún hætti að taka lyfin og, eins og hún orðar það sjálf, „kom til sjálfrar sín aftur“. Í bókinni Restrained segir Maria frá reynslu sinni af geðrofi og leið sinni til bata, sem hún fann meðal annars í mannlegum tengslum og stuðningi fjölskyldu og vina.