14. október 2026

Þegar líkaminn gleymir ekki – Áfall, hvað svo?

Hvað gerist eftir áfall? Hvað verður um reynslu sem við höfum kannski löngu lagt til hliðar en sem heldur áfram að hafa áhrif á líðan okkar, samskipti og líf? Þessar spurningar eru kjarni nýrrar bókar Sigrúnar Sigurðardóttur, Áfall, hvað svo? Bókin er bæði fræðileg og persónuleg og reynir að gera áfallafræði aðgengilegri þeim sem vilja skilja betur sjálfa sig og aðra og áhrif erfiðrar lífsreynslu.

Sigrún er menntaður hjúk­­­runarfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri og hefur um árabil rannsakað sálræn áföll, meðal annars áhrif ofbeldis í æsku á líf og heilsu fólks á fullorðinsárum. Í bókinni fléttar hún sína fræðilegu þekkingu saman við eigin reynslu og annarra. Með þessari aðferð verður textinn ekki hefðbundinn fræðitexti heldur opnari og aðgengilegri fyrir fleiri.

Það er einmitt þessi blanda af fræðum og mannlegri reynslu sem gerir bókina áhugaverða. Áföll eru ekki alltaf augljós og þurfa ekki endilega að tengjast einum stórum eða dramatískum atburði. Lífið getur skilið eftir sig reynslu sem við lærum að lifa með án þess að átta okkur á því hversu mikil áhrif hún hefur. Áhrifin geta komið fram síðar og birst bæði sem líkamleg einkenni og tilfinningaleg. Birtingarmyndirnar eru einnig í hegðunarmynstrum og samskiptum við annað fólk. Sigrún leggur áherslu á að það sé ekki alltaf sjálfur atburðurinn sem segi alla söguna heldur einnig hvernig einstaklingurinn bregðist við honum og hvort unnið sé með afleiðingar áfallsins.

Bókin er gagnleg bæði þeim sem þekkja áföll af eigin raun og þeim sem vilja skilja annað fólk betur. Hún minnir okkur á að hegðun sem við eigum erfitt með að skilja getur átt sér sögu. Manneskja sem virðist of viðkvæm, reið, lokuð eða kvíðin gæti verið að bregðast við einhverju sem við sjáum ekki. Það breytir ekki ábyrgð einstaklingsins á eigin hegðun en getur breytt viðhorfum okkar gagnvart einstaklingnum og aukið skilning okkar í leiðinni.

Það er líka mikilvægt að bókin fjalli um leiðir áfram. Það er auðvelt að tala um áföll sem eitthvað sem skilgreinir fólk en það er ekki leiðin áfram. Að skilja eigin viðbrögð getur verið fyrsta skrefið í átt að því að hafa meiri valmöguleika í lífinu. Áfall, hvað svo? er því ekki aðeins bók um það sem hefur gerst. Hún er líka bók um það sem getur gerst næst.

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram