Dagana 26.–30. ágúst kom hópur víðs vegar að úr heiminum saman á Hótel Örk í Hveragerði til að taka þátt í ráðstefnunni Open Dialogue Meeting Iceland 2026 sem Hugarafl stóð fyrir. Þar var ljósi varpað á samræðunálgun í meðferð geðrofs og þýðingu þess að innleiða Open Dialogue í geðheilbrigðisþjónustu.



Á föstudeginum var boðið upp á sérstakan opinn dag þar sem almenningi gafst kostur á þátttöku án þess að sækja ráðstefnuna í heild sinni. Björn Skúlason, forsetaherra og verndari Hugarafls, setti opna daginn formlega og í kjölfarið ræddi Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, um sögu samtakanna og þróun Open Dialogue á Íslandi. Þar á eftir talaði formaður Hugarafls, Grétar Björnsson, um sína eigin leið að bata í erindi sem bar yfirskriftina Rocky Road to Recovery. Því næst stigu á svið þau Jaakko Seikkula, einn af upphafsmönnum Open Dialogue, Kari Valtanen og Mia Kurtti og ræddu um reynsluna af því að Open Dialogue breiddist út um heiminn frá Vestur-Lapplandi.
Að loknum hádegisverði lögðu tveir fyrstu fyrirlestrarnir, annars vegar fyrirlestur Mie Leer og hins vegar fyrirlestur þeirra AnnRitu Gjertzen og Heidi Susann Emaus, áherslu á samtals- og tengslamiðaða nálgun í geðheilbrigðisþjónustu, sá fyrri út frá þróun í Árósum í Danmörku og sá síðari út frá þróun í Tromsø í Noregi. Eftir góðan kaffibolla og kærkomið kruðerí var svo komið að síðustu tveimur fyrirlesurum dagsins, þeim Mariu Ingström, sem fjallaði um eigin bata frá geðrofi og mikilvægi mannlegra tengsla, og Robert Whitaker, sem varpaði fram hugleiðingunni um hvort Open Dialogue væri í raun og veru að valda straumhvörfum í geðlækningum.
Blaðamenn tímarits Geðhjálpar fengu tækifæri til að spjalla við þau tvö og lesa má viðtölin við þau í blaðinu.