20. október 2026

Styrktarsjóður geðheilbrigðis úthlutaði í dag í sjötta sinn

Þriðjudaginn 20. október fór fram sjötta úthlutun úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Í ár bárust sjóðnum metfjöldi umsókna eða 107 að samtals yfir 260 m.kr. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði íbúa Íslands og/eða skilning þar á. Sjóðurinn hefur úthlutað 104 m.kr. til 98 verkefna á sl. sex árum.

Fimm manna fagráð, skipað þeim Hrannari Jónssyni, en hann er formaður, Páli Biering, Þórði Jónínusyni, Sigríði Huldu Guðbjörnsdóttir auk fulltrúa Geðhjálpar í forföllum Salbjargar Bjarnadóttur fór yfir umsóknirnar og lagði til við stjórn að 13 verkefni hlytu styrk í ár. Stjórn sjóðsins skipa þau: Svava Arnardóttir, formaður, Héðinn Unnsteinsson og Haraldur Flosi Tryggvason.

Stjórn samþykkti tillögur fagráðs og 13 verkefni hlutu styrk að þessu sinni og námu styrkupphæðirnar frá 400.000 kr. til 2.500.000 kr.

Hér er listi yfir öll verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni

1. Matthildur skaðaminnkun

Verkefni: Stofnun fyrsta notendahóps fólks sem notar vímuefni á Íslandi

Snýr að því að byggja upp fyrsta formlega notendahóp fólks sem notar vímuefni á Íslandi, í samstarfi við Nordic Network for Humane Drug Policy.

Matthildarsamtökin ætla að ráða jafningja í 30% starf sem byggir upp hópinn frá grunni, leiðir málsvarastarf hans og gegnir hlutverki fulltrúa Íslands í norrænu og evrópsku samstarfi notendasamtaka. Þannig skapast í fyrsta sinn fastur og viðurkenndur vettvangur þar sem reynsla notenda nýtist við stefnumótun, hönnun þjónustu og þar sem notendur geta veitt hvert öðru mikilvægan stuðning.

Styrkupphæð: 2.500.000 kr.

2. Bergið

Verkefni: Bergið nær lengra

Verkefnið felur í sér tveggja ára þróun og innleiðingu á þjónustulíkani Bergsins á Austurlandi og Vestfjörðum með reglulegri viðveru sérfræðings og samfelldri fjarþjónustu á milli heimsókna. Byggt verður á reynslu Bergsins af þjónustu á Akureyri og Grenivík til að þróa sjálfbært og yfirfæranlegt líkan sem eykur jafnt aðgengi ungmenna 12–25 ára að snemmtækum geðheilbrigðisstuðningi óháð búsetu.

Styrkupphæð: 2.500.000 kr.

3. Okkar heimur

Verkefni: Skapandi sjálfstyrkingarnámskeið

Um er að ræða sex vikna skapandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni á aldrinum 15–18 ára sem eiga foreldri með geðrænan vanda og/eða fíknivanda. Námskeiðið er geðræktar- og forvarnarverkefni sem miðar að því að efla geðheilsu, sjálfsmynd og seiglu ungra aðstandenda.

Styrkupphæð: 2.400.000 kr.

4. Andrea Diljá Ólafsdóttir

Verkefni Með tengsl við tauminn

Með tengsl við tauminn er hestatengt náms- og stuðningsúrræði fyrir börn og ungmenni sem glíma við kvíða, skólaforðun, félagslegt óöryggi, lágt sjálfstraust eða aðrar áskoranir í hefðbundnu skólaumhverfi. Verkefnið byggir á litlum hópum, rólegu umhverfi hesthússins, tengslum við dýr, verklegum verkefnum, skýrum ramma og valdeflingu barna.

Styrkupphæð: 2.000.000 kr.

5. Afstaða

Verkefnið: Stuðningur við börn

Verkefnið er samstarfsverkefni Afstöðu og Okkar heims sem styður börn sem eiga foreldri í fangelsi eða afplánun. Boðið verður upp á skipulagðar vinnustofur og stuðningshópa í öruggu rými þar sem notaðar verða skapandi aðferðir, leiklist, listsköpun og fræðsla um tilfinningar, skömm, seiglu og bjargráð. Markmiðið er að efla sjálfsmynd, félagsfærni, tengsl, seiglu og geðheilsu barnanna.

Styrkupphæð: 2.000.000 kr.

6. Hjaltastaðir

Verkefni:  Frá vansæld til tengsla og þátttöku

Hjaltastaðir vinna að því að þróa íslenskt stuðningslíkan fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á einhverfurófi og/eða með fjölþættan geðrænan vanda sem eiga erfitt með að fóta sig í hefðbundnum þjónustuleiðum. Áhersla er á merkingarbæra iðju, félagsleg tengsl, val, áhrif og tilgang, þar sem náttúra, dýr og ræktun eru meðal verkfæra. Verkefnið sækir meðal annars fyrirmyndir til BijBram í Hollandi og Sli Eile á Írlandi og er þróað með virkri þátttöku notenda, aðstandenda, jafningja og fagfólks.

Styrkupphæð: 1.600.000 kr.

7. Þúfan

Verkefni: Sterkari staða

Sterkari staða er 12 mánaða valdeflingarverkefni fyrir konur sem dvelja á Þúfunni eftir meðferð vegna vímuefnavanda. Með reglulegri hópfræðslu, einstaklingsbundinni fjármálaráðgjöf og eftirfylgd fá íbúar hagnýt verkfæri til að ná stjórn á eigin fjármálum, þekkja réttindi og úrræði og undirbúa sjálfstæða búsetu. Markmiðið er að draga úr fjárhagslegu álagi og óöryggi, efla sjálfræði, sjálfstraust og trú á eigin getu og styðja þannig við geðheilbrigði, valdeflingu og langtímabata.

Styrkupphæð: 1.400.000 kr.

8. MetamorPhonics

Verkefni: Þriggja ára þróunarverkefni MetamorPhonics

MetamorPhonics er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun sem starfar á sviði þátttökumiðaðra og samfélagstengdra tónlistarverkefna á Íslandi og í Bretlandi. Starfsemin byggir á samstarfi fólks í starfsendurhæfingu, háskólanema og fagfólks í tónlist, þar sem unnið er út frá listrænum metnaði, fagmennsku, stuðningi, hvatningu og virðingu. Umhverfið eflir fólk sem glímir við geðrænar áskoranir, það trúir á eigin getu og styrkist í sinni vegferð til betri geðheilsu.

Styrkupphæð: 1.200.000 kr.

9. Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir

Verkefni: Stillt og dugleg

„Stillt og dugleg – þegar einhverfan er ósýnileg” er fræðslu- og forvarnaverkefni fyrir skóla og foreldrafélög um börn sem dylja einhverfueinkenni sín og vanlíðan, börn sem fara undir radarinn. Rannsóknir tengja möskun við kvíða, þunglyndi, streitu, líkamleg einkenni og örmögnun. Fræðslan byggir á faglegri þekkingu, íslenskum heimildum og reynslu móður einhverfrar stúlku. Markmiðið er að auka þekkingu foreldra og starfsfólks skóla svo börn fái fyrr skilning og viðeigandi stuðning.

Styrkupphæð: 600.000 kr.

10. Einstök börn

Verkefni: Stuðboltarnir, ungmennahópar

Hóparnir samanstanda af unglingum og ungmennum sem eru félagslega van virk, jafnvel mikið einangruð og þurfa að styrkja sig í félagslegum samskiptum 14-24 ára. Hugsað fyrir unglinga sem greinst hafa með fötlun/raskanir sem standa þeim fyrir þrifum í félagsstarfi og samskiptum. Markmiðið er að auka félagslega færni, efla sjálfstjórn og styrkjajákvæða eiginleika og hæfileika.

Styrkupphæð: 500.000 kr.

11. Örninn minningar- og styrktarsjóður

Örninn býður upp á sorgarúrvinnslu fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-17 ára sem hafa misst foreldri eða systkini. Félagið stendur fyrir mánaðarlegum samverum og árlegri helgarferð þar sem unninn er markviss sorgarúrvinnsla undir leiðsögn sorgarráðgjafa. Á samverunum er foreldrum og forráðamönnum sömuleiðis boðið upp á fræðslu sem tengist þeirra hlutverki sem uppeldisaðilum barna í sorg.

Styrkupphæð: 500.000 kr.

12. Gott bakland

Verkefnið gengur út á að byggja upp jafningjastuðning í nær samfélaginu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Haustið 2026  er ætlunin að þjálfa einstaklinga sem geta orðið jafningjar og veitt stuðning út frá þekkingu, þjálfun og eigin reynslu. Markmiðið er að skapa öflugra stuðningsnet sem mætir þörfum barna, ungmenna, fullorðinna og aðstandenda þeirra. Verkefnið er í góðu samstarfi við Traustan kjarna sem verður með jafningjanámskeið í desemberbyrjun á Höfn.

Styrkupphæð: 400.000 kr.

13. Farfuglar

Verkefnið: Lost Shoe Collective

Um er að ræða Leikna stuttmyndin Farfuglar í leikstjórn og handriti Júlíu Margrétar Einarsdóttur. Myndin segir frá mæðgunum Úlfhildi og Furu sem eru bundnar sterkum en flóknum böndum í skugga andlegra veikinda móðurinnar. Á einlægan hátt fjallar hún um geðheilsu, áföll og meðvirkni og þá þöglu byrði sem getur lagst á börn aðstandenda. Tilgangur verksins er bæði listrænn og samfélagslegur: að vekja umræðu um geðrænan vanda, draga úr fordómum og minna á ábyrgð samfélagsins gagnvart börnum í viðkvæmum aðstæðum. Verkefnið er unnið af konum sem skipa öll helstu hlutverk í framleiðslunni og styður þannig við jafnrétti bæði í efnistökum og framkvæmd.

Styrkupphæð: 390.000 kr.

Myndir: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram