27. október 2026

Ráðstefnan Er þörf fyrir samfélagsbreytingar í Hörpu 8. og 9. apríl 2027

Ráðstefnan Er þörf fyrir samfélagsbreytingar (Social Change 2027) er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni í Hörpu. Þar verður ein spurning höfð að leiðarljósi: Hvað hjálpar fólki að ná bata og byggja upp innihaldsríkt líf og hverju þarf að breyta í þjónustu, kerfum og samfélagi til að það verði mögulegt? Til þess að reyna að svara þessari spurningu leiðum við saman hóp alþjóðlegra og innlendra fyrirlesara, fólk með lifaða reynslu og áhugafólk til tveggja daga samtals.

Fyrri dagurinn býður upp á fjölbreytta fyrirlestra, samtöl og umræður þar sem reynsla, rannsóknir og nýjar nálganir varpa ljósi á það sem virkar, það sem við þurfum að endurskoða og hvert við viljum stefna. Á seinni deginum verður kafað dýpra í viðfangsefnin með vinnustofum og hagnýtri þjálfun.

Miðasala er hafin á og er hægt að tryggja sér miða í miðasölu Hörpu á sérstöku tilboðsverði til 10. janúar nk.

Fimm fyrirlesarar hafa verið tilkynntir og fleiri verða kynntir á næstu vikum

 Judy Crane (LMHC-QS, CAP, ICADC, CSAT)höfundur bókarinnar The Trauma Heart og hefur yfir þrjátíu ára reynslu af meðferð áfalla og fíknivanda. Judy er framkvæmdastjóri og annar stofnandi Guest House Ocala og formaður Spirit 2 Spirit Healing, þar sem hún leggur áherslu á að hjálpa fólki að vinna úr áföllum svo það geti náð bata, vaxið og dafnað.

Michael Ryan vinnur að því að tryggja að reynsla fólks af geðrænum vanda og bata hafi áhrif á þróun geðheilbrigðisþjónustu. Hann hefur sjálfur upplifað geðrænan vanda, fíkn og heimilisleysi. Í dag stýrir hann landsskrifstofu írsku heilbrigðisþjónustunnar (HSE) um þátttöku og bata í geðheilbrigðismálum.

Dr. Tian Dayton er sérfræðingur hjá The Meadows og höfundur fimmtán bóka um áföll, fíkn og áhrif erfiðrar reynslu, þar á meðal Trauma and Addiction og The ACoA Trauma Syndrome. Hún er frumkvöðull í notkun sáldrama í meðferð (e. psychodrama), kenndi við New York-háskóla í átta ár og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, meðal annars ævistarfsverðlaun frá American Society of Psychodrama, Sociometry and Group Psychotherapy (ASGPP).

Dominique de Marné er áhrifamikill talsmaður geðheilbrigðismála í Evrópu, höfundur þriggja bóka og stofnandi Mental Health Crowd. Frá árinu 2015 hefur hún unnið að því að breyta því hvernig við tölum um geðheilbrigði, með áherslu á að grípa fyrr inn í, bregðast betur við og ræða málin af meiri hreinskilni.

Tom Pecca (LMHC-S, CTT)hefur sérhæft sig í vímuefnafíkn og hegðunarfíkn og hlotið víðtæka þjálfun hjá Dr. Patrick Carnes. Hann er vottaður meðferðaraðili við kynlífsfíkn (CSAT) og margþættri fíkn (CMAT). Tom er alþjóðlegur fyrirlesari og þjálfari sem hefur þjálfað heilbrigðisstarfsfólk í áfallamiðaðri meðferð í Bandaríkjunum og út um allan heim.

Ráðstefnan er haldin af Geðhjálp í samstarfi við Krýsuvíkursamtökin.

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram