2. nóvember 2026

Reglugerð um fósturheimilanefnd – Mál nr. 211/2026. Umsögn landssamtakannaGeðhjálpar og Þroskahjálpar

Í umsögn sem landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp skiluðu sameiginlega í júní sl., þegar lög númer 80/2026 voru til umsagnar, bentu samtökin á m.a. tvö á atriði sérstaklega sem yrði að breyta. Það sneri að því tímabili sem störf nefndarinnar næðu til. Vildu samtökin að lögin heimiluðu rannsókn til dagsins í dag en ekki til ársins 2002. Einnig vildu samtökin að rannsóknin næði einnig til meðferðarúrræða ríkisins þar sem börn voru vistuð. Á þessar ábendingar var ekki hlustað.

Í lögunum segir: „Lög þessi taka til einkaheimila þar sem börn voru vistuð fyrir atbeina stjórnvalda samkvæmt ákvörðun, samningi við opinberan aðila eða á grundvelli opinbers leyfis á tímabilinu 27. mars 1947 til 1. júní 2002.“ Í drögunum um reglugerðina segir í 3. gr. um meginverkefni fósturheimilanefndar sem ráðherra eigi að afmarka með erindisbréfi: „1. Afmörkun rannsóknarinnar, þ.m.t. að hvaða einkaheimilum rannsókn skuli beinast. 2. Afmörkun tímabils rannsóknarinnar.“ Hér er um varnagla að ræða sem landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp telja ekki eiga heima í þessari reglugerð. Með þessum varnagla er ekki útilokað að einstaklingar sem sættu illri meðferð falli milli skips og bryggju. Í athugasemdum við 9. gr. laganna er fjallað um þetta en að mati samtakanna er það varhugavert að framkvæmdavaldinu sé gefið of mikið svigrúm til að framfylgja lögunum.

Samtökin ítreka jafnframt mikilvægi þess að afdrif barna sem vistuð voru í meðferðarúrræðum á vegum ríkisins verði rannsökuð.

Landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp vilja taka fram að rannsóknarnefnd á vegum Alþingis er engin trygging fyrir því að niðurstaða fáist í málum þeirra sem brotið hefur verið á. Viljum við því enn og aftur draga fram mál sem við teljum dökkan blett á mannréttindabaráttu þess hóps sem Geðhjálp og Þroskahjálp eru í réttindabaráttu fyrir.

Til skammar fyrir forsætisráðherra og Alþingi

Landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp minna Alþingi og forsætisráðherra á að hópur fólks bíður eftir því að löggjafinn og framkvæmdavalið ljúki máli sem hófst í velferðarnefnd Alþingis fyrir fimm árum síðan. Um er að ræða afar aðkallandi mál sem varðar fullorðna einstaklinga sem ríkið og sveitarfélög landsins brutu á mannréttindum og stjórnarskrárvörðum réttindum yfir langt tímabil. Því miður hefur dráttur stjórnvalda haft það í för með sér að einstaklingar, sem biðu eftir úrvinnslu sinna mála, hafa fallið frá án þess að fá nokkra áheyrn. Það er til skammar fyrir forsætisráðherra og Alþingi.

Málið rakið

Alþingi ályktaði þann 12. júní 2021 að forsætisráðherra ætti að skipa þriggja manna nefnd til að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda. Forsætisráðherra skipaði nefndina þann 14. september 2021 og nefndin skilaði skýrslu sinni og tillögum til forsætisráðherra í maí 2022.

Í þeirri skýrslu kom m.a. þetta fram:

Sterkar vísbendingar eru um að fatlað fólk hafi sætt illri meðferð á stofnunum og mikilvægt að slíkt sé dregið fram í dagsljósið.

Nefndin leggur áherslu á að rannsókn byggi á gagnsæi, bæði hvað varðar verklag og niðurstöður. Með því móti muni rannsókn nýtast sem stærstum hópi fatlaðs fólks og þjónustuaðila.

Á grundvelli þeirra gagna sem nefndin aflaði og ábendinga samráðsaðila leggur nefndin til að markmið rannsóknanna verði sem hér segir:

Markmið rannsóknar á tímabilinu 1970 til 2011 verði að svara eftirfarandi spurningum:

  1. Hver var reynsla fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda af dvöl á stofnunum og í studdri búsetu á árunum 1970 til 2011?
  2. Að leiða í ljós hugsanlega illa meðferð þessa hóps.
  3. Hvernig sinntu þar til bærir aðilar eftirlitsskyldu sinni með þessum stofnunum?

Markmið rannsóknar á tímabilinu 2011 til dagsins í dag yrði þríþættur:

  1. Að draga upp heildstæða mynd af aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda á stofnunum og í studdri búsetu.
  2. Að leiða í ljós hugsanlega illa meðferð þessa hóps.
  3. Að greina kerfislæga þætti sem kunna að auka líkur á slæmum aðbúnaði og meðferð.¹

Forsætisráðherra sendi í kjölfarið málið aftur til velferðarnefndar Alþingis til þinglegrar úrvinnslu. Samkvæmt upplýsingum Geðhjálpar og Þroskahjálpar frá velferðarnefnd Alþingis var skýrslan tekin fyrir í nefndinni í október 2022. Frá þeim tíma hafa samtökin ítrekað kallað eftir upplýsingum úr þinginu og forsætisráðuneytinu. Erindi hafa verið send öllum formönnum velferðarnefndar og auk nefndarmanna sem setið hafa í nefndinni frá því í október 2022. Einnig hafa forsætisráðherrar sem setið hafa á þessum tíma verið þráspurðir auk þess sem fundað hefur verið með forsetum Alþingis.

Það eru liðin fimm ár frá því að Alþingi samþykkti tillögu velferðarnefndar og fjögur ár frá því að forsætisráðherra sendi málið til velferðarnefndar þingsins. Að mati samtakanna er þessi meðferð á málinu algjörlega óásættanleg og afar tillitslaus gagnvart fötluðu fólki sem í hlut á og lýsir alvarlegu virðingarleysi gagnvart fötluðu fólki almennt. Engin svör hafa borist, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, hvað tefji þessa vinnu og hvers vegna málinu er ekki gefin sú athygli af hálfu ráðuneytisins og þingsins sem það á skilið. Hér er um að ræða fólk sem samfélagið brást á löngum köflum í lífi þess og vísbendingar hafa komið fram að alvarleg mannréttindabrot hafi verið framin gagnvart því.

Samtökin skora á forsætisráðherra og Alþingi að setja þetta mál aftur á dagskrá og sýna því fólki sem um ræðir lágmarks virðingu eftir að hafa sýnt því algjört fálæti í allt of langan tíma.

Svava Arnardóttir
Formaður Geðhjálpar

Guðmundur Ármann Pétursson
Formaður Þroskahjálpar


¹„Undirbúningur rannsóknar á aðbúnaði og meðferð fullorðins fólks með þroskahömlun og fólks með geðrænan vanda, “ 9–10. https://www.stjornarradid.is/library/?itemid=f78c46c0-e73a-11ec-8149-005056bcf582

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram