16. nóvember 2026

Umsögn um frumvarp til laga um sanngirnisbætur – mál nr. S-226/2026

Saga okkar Íslendinga þegar kemur að málefnum barna og fólks í viðkvæmri stöðu er ekki alltaf falleg. Það er mikilvægt að stjórnvöld hvers tíma axli ábyrgð á því sem miður hefur farið og leitist við að bæta fyrir þá illu meðferð sem börn og annað fólk í viðkvæmri stöðu hefur þurft að þola vegna aðgerða eða aðgerðarleysis stjórnvalda fortíðarinnar.

Landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp fagna því að fram séu komin frumvarpsdrög sem ætlað er að koma á almennu og varanlegu úrræði fyrir einstaklinga sem vistaðir voru sem börn utan heimilis síns fyrir atbeina stjórnvalda og urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi meðan á vistun stóð. Með frumvarpinu er stigið mikilvægt skref í þá átt að hið opinbera viðurkenni ábyrgð sína á þeim misgjörðum sem þessir einstaklingar urðu fyrir og að komið verði á samræmdri málsmeðferð sem er ekki háð því hvort stjórnvöld hafi áður ákveðið að rannsaka tilteknar stofnanir eða heimili.

Samtökin telja að gera þurfi veigamiklar breytingar á frumvarpinu, einkum hvað varðar fjárhæð sanngirnisbóta, fjármögnun þeirra og rétt einstaklinga til sálræns stuðnings. Þá telja samtökin ástæðu til að gera athugasemd við takmarkanir á rétti þeirra sem áður hafa fallið undir innköllun bóta.

1. Hámarksfjárhæð sanngirnisbóta

Í 8. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir þremur bótaflokkum, einni, þremur og fimm milljónum króna. Hámarksfjárhæðin er því fimm milljónir króna. Samkvæmt lögum nr. 47/2010 voru hámarksbætur sex milljónir króna. Sú fjárhæð samsvarar um 11,6 milljónum króna á verðlagi október 2026. Hámarksbætur samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi eru því um 6,6 milljónum króna lægri að raunvirði en þær voru árið 2010. Það jafngildir um 57% lækkun.

Geðhjálp og Þroskahjálp telja að stjórnvöld verði að færa skýr og málefnaleg rök fyrir svo verulegri lækkun á raunvirði sanngirnisbóta. Ekki verður séð að eðli þeirra misgjörða sem hér um ræðir hafi breyst eða að afleiðingar þeirra séu minni en áður var talið. Í greinargerð frumvarpsins er meðal annars vísað til þess að hámarksbætur í Noregi séu 250.000 norskar krónur. Samtökin telja að samanburður við erlendar fyrirmyndir geti vissulega verið gagnlegur en slíkur samanburður leysir íslensk stjórnvöld ekki undan þeirri skyldu að rökstyðja sjálfstætt hvaða bætur teljist sanngjarnar hér á landi. Sérstaklega þarf að skýra hvers vegna norskt fyrirkomulag eigi að ráða viðmiðum um bætur á Íslandi fremur en sú reynsla og þau viðmið sem þegar hafa mótast hér á landi.

Í greinargerðinni er jafnframt vísað til þess að sönnunarkröfur verði vægari en samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og að eðlilegt samhengi sé milli vægari sönnunarkrafna og hóflegra bótafjárhæða. Samtökin telja þessa röksemdafærslu umdeilanlega. Vægari sönnunarkröfur eru nauðsynlegar vegna eðlis þeirra mála sem hér um ræðir, þar sem atvik áttu sér oft stað fyrir áratugum, gögn kunna að vera glötuð og vitni jafnvel látin. Það ætti ekki að leiða til þess að viðurkenning samfélagsins á misgjörðunum verði minni.

Þá er í greinargerðinni lögð áhersla á að peningagreiðslur séu aðeins einn þáttur úrræðisins og að sálrænn stuðningur komi einnig til. Það mikilvægt að þessu tvennu sé ekki blandað saman. Sanngirnisbætur eru viðurkenning hins opinbera á því ranglæti sem einstaklingur hefur orðið fyrir. Sálrænn stuðningur hefur annan tilgang, að styðja fólk til að vinna úr afleiðingum þess sem gerðist.

Geðhjálp og Þroskahjálp leggja til að hámarksfjárhæð sanngirnisbóta verði endurskoðuð með hliðsjón af raunvirði þeirra bóta sem ákveðnar voru samkvæmt lögum nr. 47/2010 og að fjárhæðir bótaflokka verði verðtryggðar eða taki sjálfkrafa breytingum í samræmi við verðlagsþróun.

2. Fjármögnun og ábyrgð hins opinbera

Samtökin gera alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulag fjármögnunar Sanngirnisbótasjóðs samkvæmt 11. og 12. gr. frumvarpsins. Í 11. gr. segir: „Skuldbindingar sjóðsins takmarkast við eignir hans á hverjum tíma og skulu útgreiðslur úr sjóðnum taka mið af því fjármagni sem hann hefur til ráðstöfunar.“ Þá er sjóðsstjórn heimilt að fresta greiðslum eða greiða bætur í áföngum ef fjármunir sjóðsins nægja ekki til að greiða samþykktar bætur.

Þetta þýðir að einstaklingur, sem hefur fengið viðurkenningu á því að hann hafi orðið fyrir alvarlegum misgjörðum og ákvörðun um greiðslu sanngirnisbóta, hefur ekki tryggingu fyrir því að bæturnar verði greiddar innan tiltekins tíma. Í greinargerð frumvarpsins er þessi nálgun enn fremur rökstudd með því að sjóðsfyrirkomulagið undirstriki að um sé að ræða greiðslur á grundvelli umsóknar „fremur en lagalegan rétt til tiltekinnar fjárhæðar“. Þá er sérstaklega tekið fram að með þessu fyrirkomulagi verði útgjöld ríkisins fyrirsjáanlegri.

Geðhjálp og Þroskahjálp telja að hér sé grundvallarspurning um ábyrgð hins opinbera. Ef stjórnvöld viðurkenna að einstaklingur hafi orðið fyrir misgjörðum á þeirra ábyrgð og ákveða að greiða honum sanngirnisbætur, hlýtur sú ákvörðun að fela í sér raunverulega skuldbindingu. Ekki verður séð að sanngirni felist í því að sá sem varð fyrir misgjörðunum beri jafnframt áhættuna af því hvort hið opinbera hafi tryggt nægilegt fjármagn til að standa við eigin ákvörðun.

Í 12. gr. er gert ráð fyrir að ráðherra leiti samkomulags við Samband íslenskra sveitarfélaga um framlög sveitarfélaga til sjóðsins. Ekkert í ákvæðinu tryggir þó að slíkt samkomulag náist eða að fjármögnun sjóðsins verði nægileg. Samtökin telja að kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga eigi að vera alfarið á ábyrgð þessara stjórnvalda og megi ekki hafa áhrif á rétt einstaklinga til greiðslu samþykktra bóta.

Geðhjálp og Þroskahjálp leggja til að ákvæðum frumvarpsins verði breytt þannig að ríkissjóður beri endanlega ábyrgð á greiðslu allra samþykktra sanngirnisbóta og að fjárskortur sjóðsins geti ekki orðið grundvöllur frestunar á greiðslum.

3. Sálrænn og félagslegur stuðningur

Geðhjálp og Þroskahjálp fagna því að í 9. gr. frumvarpsins sé gert ráð fyrir sálrænum stuðningi við einstaklinga sem fá sanngirnisbætur. Í greinargerðinni kemur jafnframt fram að ekki sé lagt til hámark á kostnað við slíkan stuðning heldur ráðist umfang hans af faglegu mati á þörfum hvers og eins. Þetta er jákvætt en samtökin telja nauðsynlegt að útfæra réttinn til stuðnings með skýrari hætti.

Margir þeirra einstaklinga sem frumvarpið tekur til hafa búið við afleiðingar alvarlegra og langvarandi áfalla um áratugaskeið. Þær afleiðingar geta verið flóknar og haft áhrif á geðheilsu, líkamlega heilsu, félagslega stöðu, tengslamyndun, atvinnuþátttöku og lífsgæði. Vinna með slíka áfallasögu getur tekið langan tíma og krafist fjölbreyttra meðferðar- og stuðningsúrræða. Ekki er sjálfgefið að hefðbundin sálfræðimeðferð eða afmarkaður fjöldi viðtala nægi til að mæta þörfum einstaklinga sem hafa orðið fyrir langvarandi ofbeldi, vanrækslu eða öðrum alvarlegum misgjörðum í æsku.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að stuðningurinn verði veittur í samstarfi við Landspítala og taki mið af faglegu mati heilbrigðisstarfsmanna. Samtökin telja mikilvægt að slíkt mat fari fram í virku samráði við einstaklinginn sjálfan og taki mið af óskum hans, reynslu og aðstæðum. Jafnframt þarf að tryggja að einstaklingar geti fengið stuðning utan hefðbundins heilbrigðiskerfis þegar það á betur við, svo sem hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingum eða með öðrum viðurkenndum áfallamiðuðum nálgunum. Jafningjastuðningur og félagsleg endurhæfing geta einnig verið mikilvægir þættir í bataferli.

Þá telja samtökin mikilvægt að réttur til stuðnings sé ekki alfarið háður því að ákvörðun um sanngirnisbætur liggi fyrir. Umsóknarferlið sjálft getur verið einstaklingum þungbært og kallað fram erfiðar minningar og viðbrögð. Nauðsynlegt er að tryggja að einstaklingar hafi aðgang að viðeigandi stuðningi frá upphafi ferlisins, óháð því hver niðurstaða umsóknar verður.

Samtökin leggja einnig áherslu á að sálrænn stuðningur sé ekki aðeins skilgreindur sem þjónusta sem stendur til boða heldur sem raunverulegur réttur til viðeigandi meðferðar og stuðnings. Sá réttur þarf að vera skýr, aðgengilegur og óháður búsetu eða fjárhagsstöðu.

Geðhjálp og Þroskahjálp leggja til til að 9. gr. verði endurskoðuð þannig að einstaklingum verði tryggður gjaldfrjáls, einstaklings- og áfallamiðaður stuðningur sem taki mið af heildstæðri áfallasögu þeirra. Umfang og lengd stuðningsins ráðist af þörfum einstaklingsins, í samráði við hann, en ekki fyrirfram ákveðnum takmörkunum.

4. Takmarkanir vegna fyrri innköllunar bóta

Í 6. gr. frumvarpsins er kveðið á um að sanngirnisbætur verði ekki greiddar vegna vistunar á stofnun eða heimili á tímabili sem innköllun samkvæmt lögum nr. 47/2010 tók til, hvort sem viðkomandi lagði fram kröfu á grundvelli innköllunarinnar eða ekki. Samtökin telja ástæðu til að endurskoða þetta ákvæði.

Þótt eðlilegt sé að koma í veg fyrir að einstaklingar fái ítrekað bætur vegna sömu atvika er ekki sjálfgefið að einstaklingur sem af einhverjum ástæðum nýtti sér ekki fyrra bótaúrræði eigi að vera varanlega útilokaður frá því að fá misgjörðirnar viðurkenndar. Hafa verður í huga að þeir einstaklingar sem hér um ræðir kunna að hafa glímt við alvarlegar afleiðingar áfalla, félagslega einangrun, vantraust á stjórnvöld eða aðrar aðstæður sem gerðu þeim erfitt að sækja rétt sinn innan tiltekinna tímamarka.

Samtökin telja að skoða þurfi hvort ákvæðið samræmist markmiðum frumvarpsins um almennt og varanlegt úrræði sem eigi að tryggja jafnræði og aðgengi að sanngirnisbótum.

Geðhjálp og Þroskahjálp leggja til að einstaklingum sem ekki fengu greiddar bætur samkvæmt eldri lögum verði ekki sjálfkrafa synjað um sanngirnisbætur samkvæmt nýjum lögum, eingöngu vegna þess að fyrri innköllun tók til vistunar þeirra.

Lokaorð

Landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp telja mikilvægt að frumvarp um almennar sanngirnisbætur verði að lögum og að komið verði á varanlegu úrræði fyrir þá einstaklinga sem orðið hafa fyrir alvarlegum misgjörðum á ábyrgð hins opinbera. Hins vegar verður að tryggja að úrræðið feli í sér raunverulega viðurkenningu á því ranglæti sem framið var og að einstaklingar geti treyst því að sú viðurkenning hafi raunverulega þýðingu.

Það skýtur skökku við að hið opinbera skuli annars vegar viðurkenna ábyrgð sína á alvarlegum misgjörðum en hins vegar takmarka fjárhagslega ábyrgð sína með þeim hætti að greiðsla samþykktra bóta verði háð fjárhagsstöðu sérstaks sjóðs. Sömuleiðis telja samtökin mikilvægt að sálrænn stuðningur verði ekki notaður sem röksemd fyrir lægri sanngirnisbótum. Viðurkenning á ranglæti og stuðningur við bata eru tvö sjálfstæð verkefni sem hið opinbera þarf að axla ábyrgð á.

Sanngirnisbætur eiga fyrst og fremst að snúast um réttlæti fyrir þá sem urðu fyrir misgjörðum, en ekki um að takmarka fjárhagslega áhættu þeirra stjórnvalda sem bera ábyrgð á þeim.

Landssamtökin Geðhjálp og Þroskahjálp hvetja stjórnvöld til að endurskoða frumvarpið með þessi sjónarmið að leiðarljósi.


Svava Arnardóttir                                                      
Formaður Geðhjálpar                                                

Guðmundur Ármann Pétursson
Formaður Þroskahjálpar

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram