Aðalfundur landssamtakanna Geðhjálpar var haldinn fimmtudaginn 25. mars sl. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Kosningu í aðalstjórn til næstu tveggja ára hlutu þeir Jón Ari Arason og Birgir Páll Hjartarson. Kosningu í varastjórn næsta árið hlutu þau Sigrún Sigurðardóttir og Hallgrímur Hrafnsson. Fyrir í stjórn sátu fyrir þau Guðrún Þórsdóttir, Elín Ebba Ásmundsdóttir, Sigmar Þór Árnason, Sigurborg Sveinsdóttir og Svava Arnardóttir, sem jafnframt er formaður samtakanna, og sitja þau í stjórn til næsta aðalfundar.
Meðfylgjandi er ársskýrsla samtakanna og ársreikningur ásamt myndum frá aðalfundinum.