Ánægja er… er átak til styrktar Geðhjálp þar sem fólk er hvatt til þess að skrifa það sem veitir því ánægju á vefsíðunni anaegjaer.is. Sjóvá hefur heitið 500 krónum fyrir hverja innsendingu en markmiðið er að safna tveimur milljónum króna.
Í samtali við Vísi segir Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, verkefnið sprottið frá mælingum á ánægju viðskiptavina. Ánægja þeirra sé „hjartað í því sem þau geri“.
„En ánægja er svo miklu meira en mæling á blaði. Hún getur verið augnablikið þegar maður hægir aðeins á sér og tekur eftir litlu hlutunum sem skipta samt svo miklu máli. Bros frá ókunnugum. Að vera hleypt inn í bílaröðina. Kyrrðin í náttúrunni. Eða einfaldlega gott spjall við vin,“ segir Lára.
Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir í sama viðtali að hver innsending skipti máli, ekki síst þar sem Geðhjálp stefnir að opnun skjólshúss á þessu ári þar sem fólk mun geta dvalið í eina til tvær vikur.
Athvarfið eigi að vera fyrirbyggjandi og þangað geti fólk leitað þegar það á við einhvers konar geðrænan vanda að stríða, áður en hann verður of stór.
„Þetta getur verið fólk sem hefur lent í alveg lent í miklum krísum eða eru kannski í mikilli krísu. En hugmyndin er þetta er nálgun,“ segir hann og að unnið verði eftir ákveðinni hugmyndafræði um bata sem gangi út á að fólk viti sjálft hvað það þurfi.