8. apríl 2026

Fordómar, afbrot og andlegar áskoranir

Hádegisfundur á Kjarvalsstöðum í fundarsalnum Grjót þriðjudaginn 21. apríl frá kl. 12:00 til 13:00 þar sem farið verður yfir niðurstöður könnunar um fordóma gagnvart einstaklingum sem hafa brotið af sér.

Þriðjudaginn 21. apríl nk. stendur Geðhjálp fyrir hádegisfundi á Kjarvalsstöðum um fordóma Íslendinga gagnvart andlegum áskorunum. Þar mun Jón Gunnar Bernburg prófessor við Háskóla Íslands kynna nýjar niðurstöður úr rannsókn sem var framkvæmd 2025, sem var fjármögnuð var af Geðhjálp. Jón Gunnar mun skoða sérstaklega fordóma gagnvart einstaklingum sem hafa brotið af sér.

Auk Jón Gunnars mun Tolli Morthens frá Bataakademíunni vera með stutt erindi og einstaklingur með lifaða reynslu deilir henni. Í lokin verða umræður. Boðið verður upp á kaffi. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Dagskrá

• 12:00 Jón Gunnar Bernburg frá Háskóla Íslands
• 12:15 Tolli Morthens frá Bataakademíunni
• 12:25 Aðili segir frá reynslu sinni
• 12:35 Umræður

Fordómar gagnvart einstaklingum með geðrænan vanda og/eða fíknivanda hafa ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir einstaklinga og samfélög. Árið 2006 voru fordómar almennings á Íslandi mældir í fyrsta skipti, sem hluti af alþjóðlegri rannsókn, og árið 2022 til 2023 var sú mæling endurtekin af Geðhjálp undir forystu Sigrúnar Ólafsdóttur prófessors í félagsfræði við HÍ, sem einnig stýrði alþjóðlegu rannsókninni 2006. Var ákveðið að endurtaka mælinguna á tveggja ára fresti og er kynning núna afrakstur þeirrar mælingar. Hún var aftur framkvæmd undir forystu Sigrúnar og mun Geðhjálp í framhaldinu standa fyrir hádegisfundum næstu mánuði og fara betur yfir einstaka þætti könnunarinnar.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram