26. nóvember 2024

Foreldrar barna sem glíma við geðrænar áskoranir

Þriðjudaginn 3. desember kl. 20:00 fer fram fundur í Hlutverkasetri, Borgartúni 1, á vegum Geðhjálpar og Umhyggju, þar sem markmiðið er að skapa vettvang fyrir foreldra barna sem glíma við geðrænar áskoranir.

Foreldrahópur innan Geðhjálpar hefur verið stofnaður, en markmiðið með fundinum að þessu sinni er að ræða hvernig hægt sé að stækka hópinn og koma reglulegum fundum á laggirnar. Við hvetjum foreldra barna sem glíma við geðrænar áskoranir til þess að mæta og koma sínum skoðunum og reynslu á framfæri.

Fyrr á þessu ári var haldin kynning að aðild Geðhjálpar að Umhyggju félagi langveikra barna og hvað sú aðild getur þýtt fyrir félaga í Geðhjálp, en foreldrar barna með geðrænar áskoranir sem verða hluti af Foreldrahópi Geðhjálpar fá með aðild Geðhjálpar að Umhyggju aðgang að fjölbreyttri þjónustu og stuðningi til félagsmanna aðildarfélaga Umhyggju.

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eiga 17 félög og hópar foreldra langveikra barna aðild að félaginu.

Geðhjálp eru samtök 7.500 félaga, notenda, aðstandenda, fagfólks og áhugafólks um bættan hag fólks sem býr við geðrænar áskoranir í samfélaginu. Samtökin vinna að því að bæta þjónustu, verja réttindi og vinna gegn fordómum með hagsmunagæslu, ráðgjöf, upplýsinga- og þekkingarmiðlun.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram