9. janúar 2023

G vítamín á þorranum

Yfir þorrann, þá býður Geðhjálp upp á dagleg hollráð til þess að bæta geðheilsu. Við köllum þessi hollráð G vítamín.

Við vitum öll að það er hollt að hreyfa sig reglulega og taka vítamín daglega. En það gleymist gjarnan að rækta og vernda geðheilsu okkar. Þess vegna mælum við með að taka G vítamín á hverjum degi, sérstaklega í skammdeginu.

Í ár býður Geðhjálp auk þess upp á sérstaka G vítamín dropa sem eru notaðir samhliða daglegri geðrækt. Með dropunum fylgja leiðbeiningar um notkun ásamt QR-kóða sem beinir notandanum á G vítamín dagsins.

G vítamínin verða aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku. Á þorranum verður jafnframt dreift 30 myndböndum þar sem farið verður nánar yfir hvert G vítamín. G vítamín droparnir eru framleiddir í samstarfi við Angan þar sem lögð er áhersla á hreinar og sjálfbærar vörur.

Allur ágóði af G vítamín dropunum mun renna í Styrktarsjóð geðheilbrigðis en tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði landsmanna og skilning á málaflokknum.

G vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Sjá nánar á landlaeknir.is og hedinn.org/lifsordin14

G vítamín droparnir kosta 4.500 kr. en hægt er að nálgast dropana hjá Geðhjálp í síma 570 1700 eða á gedhjalp@gedhjalp.is.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram