21. ágúst 2025

Geðlestin í Gulum september

Í tilefni af Gulum september, sem er forvarnarátak sem er ætlað að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið og bjóða upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði.

Geðlestin er heiti verkefnisins en það hefur áður farið um landið en þá var áherslan á börn og ungmenni en núna er ætlunin að hitta sveitarstjórnir, félags- og skólamálayfirvöld annars vegar og almenning hins vegar. Við hittum sveitarstjórnir og félags- og skólayfirvöld í hádeginu en almenning á kvöldfundum. Geðhjálp fór í slíkt ferðalag síðasta haust en heldur nú ferðalaginu um landið áfram.

Á hádegisfundinum kynnir Geðhjálp ýmsa geðheilsuvísa (mælikvarða), fjallar um mikilvægi geðræktar, hvernig draga megi úr fordómum og mögulegar leiðir til þess að efla forvarnir. Markmiðið er einnig að eiga samtal við heimafólk og hvað helst brennur á því í tengslum við geðrækt og geðheilbrigði.

Kvölddagskrá er aðeins öðruvísi sett upp. Hún hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir þar nefndar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunum og hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best.

Eftir reynslusöguna verða umræður/samtal. Í lokin stíga þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Gert er ráð fyrir að kvöldfundurinn standi í 80 til 90 mínútur.

Viðkomustaðir kvöldfunda

Þriðjudagurinn 16. september
Félagsheimilið Hvoll á Hvolsvelli kl. 20:00

Mánudagurinn 22. september

Safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju kl. 20:00

Þriðjudagur 23. september
Grána Sauðárkróki kl. 20:00

Miðvikudagur 24. september

Menningarhúsið Hof á Akureyri kl. 20:00

Fimmtudagurinn 25. september

Nesskóli í Neskaupstað kl. 20:00

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram