Guðmundur Hafþórsson kom á dögunum á skrifstofu Geðhjálpar færði samtökunum 1 m.kr. sem hann safnaði með því að spila golf í 24 klst. á Urriðaholtsvelli dagana 21. til 22. júní sl.
Með viðburðinum vildi Guðmundur vekja athygli á geðheilbrigðismálum og mikilvægi þess fyrir hvern og einn að huga að andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu. Guðmundur bendir á að golf sé tilvalin íþrótt til að leggja stund á því hún sameini vel þessa þrjá þætti.
Geðhjálp þakkar Guðmundi kærlega fyrir að setja geðheilbrigði á dagskrá með þessum snjalla hætti og hafa í leiðinni safnað peningum fyrir mikilvægt starf samtakanna.
Á myndinni má sjá Guðmund ásamt Grími Atlasyni, framkvæmdastjóra Geðhjálpar, við þetta tækifæri.
