Áætlað er að nýtt svokallað geðþjónustuhús Landspítala rísi innan fárra ára ef allt gengur eftir. Páll Matthíasson geðlæknir segir að samhliða nýju geðþjónustuhúsi verði hætt að nota eldri geðdeildir spítalans sem eru löngu úreltar og standast hvorki kröfur um nútímahönnun geðdeilda né öryggi sjúklinga. Hann segir jafnframt að nútímahönnun geðsjúkrahúsa sé batamiðuð en að nálægð við sjúkrahús sé mikilvæg. Með nýju geðþjónustuhúsi fáist einnig fleiri legurými en hér á landi eru þau mun færri miðað við íbúafjölda en í nágrannalöndunum sem getur haft slæmar afleiðingar.
Ítarleg vinna hefur verið lögð í áætlanagerð nýs geðþjónustuhúss en litið hefur verið til nágrannaþjóða og reynslu þeirra sem og arkitekta sem hafa sérhæft sig í hönnun slíkra bygginga. Páll leiddi vinnu stýrihóps um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum frá 2023 til 2027.
Núverandi húsnæði Landspítala sem hýsir geðþjónustu tryggir illa öryggi notenda og ýtir ekki undir bata. Úttektir hafa verið gerðar, m.a. af eftirlitsaðila umboðsmanns Alþingis, sem hafði margar athugasemdir um núverandi húsnæði sem lúta að þessum atriðum. „Þetta húsnæði er barn síns tíma. Við erum með Klepp, sem er 9.000 fermetrar en margt af því nýtist ekki vel. Síðan erum við með geðþjónustubygginguna á Hringbraut sem er reyndar með yngra húsnæði spítalans, var opnað 1979, en það hentar ekki vel og jafnvel verr en Kleppur, með sína hrufóttu veggi, fólk má varla reka sig utan í án hættu á að slasast. Svo er þar vandi með hljóðeinangrun, brunavarnir, birtu og fleira en allt eru þetta þættir sem eru með óhentugum hætti. Við erum með barna- og unglingadeildina, sem er ekki inni í þessum áætlunum, en hluti af því húsnæði er nýrra og ágætt.
Síðan er Laugarás, falleg villa á Laugarásvegi, sem var breytt í átta rúma legudeild og dagdeild fyrir ungt fólk með byrjandi geðrof. Vandinn er sá að þetta er allt saman misóhentugt húsnæði og gamaldags og eftirlitsaðilar hafa gert ýmsar athugasemdir við það og þá þætti sem ég nefndi. Þessir eftirlitsaðilar eru Pyntingarvarnarnefnd Evrópu („CPT nefndin“) og eftirlitsaðili umboðsmanns Alþingis sem hefur eftirlit með aðstæðum frelsissviptra, (OPCAT), en það er viðbótar eftirlit sem við höfum gengist á hendur vegna sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Eitt er það að húsnæðið er gamalt, úr sér gengið út frá skipulagi, þar er mikið af tvíbýlum, þegar fólk í dag þarf að vera í einbýli, en þar fyrir utan þá er þetta ekki það sem kallast batamiðað húsnæði og það er kannski grunnurinn,“ segir Páll.
„Árið 2022, þegar ég hafði látið af störfum sem forstjóri Landspítala, kom Willum Þór Þórsson, þá heilbrigðisráðherra, að máli við mig og bað mig að koma að máli sem hafði verið í vinnslu í ráðuneytinu en það var stefna í geðheilbrigðismálum til 2027. Ég gerði það. Það var búið að gera heilmikla vinnu í ráðuneytinu og ég hélt áfram að vinna að þessu máli. Í framhaldinu bað hann mig að leiða vinnu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum frá 2023 til 2027. Þetta urðu 27 aðgerðir í áætluninni sem Alþingi lýsti stuðningi við í þingsályktun og ég vann þetta með breiðum hópi fólks en meðal aðgerða þar var að það þyrfti að setja upp nýtt húsnæði fyrir geðþjónustu,“ segir Páll.
Hefur verið samráð við notendur þjónustu, starfsfólk og aðstandendur líka um þetta?
„Já, einkum notendur og starfsfólk en líka aðstandendur.“ Páll segir þátt notenda geðþjónustunnar hafa skipt miklu máli, fólksins sem hefur þurft að dvelja meira eða minna í húsnæði sem löngu er orðið úrelt. „Það sem skipti líka miklu máli var að í þessari vinnu allri tók Hrafn Jökulsson heitinn þátt. Hann þekkti þjónustuna sem notandi og var bara með eitt mál á dagskrá og það var: „Það þarf nýja geðdeild, þetta gengur ekki“. Þetta varð að miklu áherslumáli. Það var alveg ljóst að það þyrfti nýtt geðþjónustuhús, ekki síður en meðferðarkjarna á Landspítala. Við vöktum athygli á að það væri mjög brýnt að fá nýtt geðþjónustuhús.
Vorið 2023 tilkynnti ríkisstjórnin fyrrverandi að ætlunin væri að byggja nýtt geðþjónustuhús og setja í það fjármuni. Þetta var hluti af því að ríkisstjórnin kynnti nýja fjármálaáætlun fyrir Landspítala. Þá kom upp spurningin hvers konar hús ætti að byggja. Þetta var einstakt tækifæri því yfirleitt erum við að vinna í kringum núverandi aðstöðu en þegar byggja á nýtt þá verður til tækifæri til að laga sig að vinnuferlinu en það er ekki alltaf einfalt. Þegar farið var að skoða nýtt geðþjónustuhúsnæði komum við að því sama og var með meðferðarkjarnann – hvernig er best að vinna og hvaða húsnæði styður það? Ráðherra fól mér að vinna svokallaðan undirbúning forathugunar í árslok 2022 en þá er bara verið að spyrja spurninga eins og hvers konar forsendur höfum við til hliðsjónar og hvers konar húsnæði þarf geðþjónusta framtíðarinnar.
Ég fékk gott fólk með mér, Nönnu Briem, framkvæmdastjóra geðþjónustunnar, Héðin Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðing sem var þá formaður Geðhjálpar, og Helgu Sif Friðjónsdóttur, geðhjúkrunarfræðing frá heilbrigðisráðuneytinu sem var staðgengill skrifstofustjóra. Við ætluðum að vinna hratt og unnum þetta fram á vor 2023 og þá kynnti ég þetta fyrir ríkisstjórninni og gerð var skýrsla starfshópsins.“
Starfshópurinn kynnti sér hvað aðrar þjóðir væru að gera í þessum málum og þar var litið sérstaklega til Noregs, Danmerkur og Skotlands. „Við skoðuðum geðsjúkrahús og hittum arkitekta og hönnuði og áttuðum okkur á að allt sem hafði verið hannað á undanförnum árum og áratugum er batamiðað. Við gerðum skoðanakannanir og tókum viðtöl meðal starfsfólks og yfirmanna í geðheilbrigðiskerfinu, einkum Landspítala. Við höfðum samstarf við Geðhjálp og Hugarafl en þar voru notendahópar sem skoðuðu hvað þyrfti að liggja til grundvallar í nýju geðþjónustuhúsi. Þetta allt lögðum við saman í þessa skýrslu stýrihópsins. Þar er rakið á 80 síðum hvað er átt við með batamiðuðu húsnæði. Við ræddum líka aðra mikilvæga hluti eins og hvað þarf stórt geðþjónustuhús og hversu mikið pláss það þarf.“
Í fyrsta lagi segir Páll að geðþjónustuhús þurfi að vera í batamiðaðri byggingu og að þar sé aðgengi að birtu og náttúru stór þáttur.
„Það þarf að byggja deildir í kringum inngarða, sem eru örugg rými en án girðinga og legurými þarf að vera á einni hæð, og þá skrifstofur og göngudeildir á annarri hæð. Þetta var mikið rætt í geðráði því þar hafði fólk áhyggjur af staðsetningunni, sumir töldu að hún væri of mikið inni í borginni á meðan aðrir sögðu það mikilvægt að vera ekki of fjarri þeim sem þjónustuna nota. Staðsetningin sem var á endanum valin er sunnan og austan megin við gamla Borgarspítalann.
Annað er að bráðamóttakan mun fara í burtu en bráðamóttaka geðþjónustu verður þarna mögulega þannig að þetta er svæði sem er þegar vant því að hafa heilbrigðisþjónustu, þarna eru græn svæði og stutt í aðra heilbrigðisþjónustu. Við í geðráði, sem er 19 aðila samráðshópur helstu haghafa, með fulltrúa notenda sem helming þátttakenda, skoðuðum málið vandlega og gerðum ályktun sem var ekki birt opinberlega en send Reykjavíkurborg þar sem stuðningi var lýst við þessa staðsetningu ásamt því að þar er tekið fram að byggingin muni verða lágreist og til prýði. Það er allt annað að búa nálægt þessum lágreistu, fallegu byggingum í grænu umhverfi en margra hæða þéttskipuðum íbúða blokkum sem annars væri hætt við að risi þarna.
Nú liggur þetta hjá borginni. NSLH ohf., sem hefur umsjón með nýjum Landspítala, er að undirbúa kynningu fyrir íbúa í grenndinni á þessum hugmyndum. Það er ekki búið að teikna geðþjónustuhúsið en það er búið að forhanna það. Geðsjúkrahúsið á Hringbraut verður ekki nýtt fyrir sjúklinga, en gæti verið ágætis skrifstofubygging. Kleppur á fortíð en ekki framtíð þó að þau hús verði eflaust nýtt í eitthvað áfram.“
Með batamiðuðu húsnæði er átt við húsnæði sem ýtir undir andlegan og líkamlegan bata sem kemur fram í ýmsum þáttum, að sögn Páls. „Það hefur verið kannað á undanförnum áratugum hvernig slíkt húsnæði er best hannað, aðallega í nágrannalöndum okkar. Það húsnæði er þá, þegar kemur að geðsjúkrahúsum, með greitt og fullt aðgengi að náttúrunni, eða grænum svæðum. Birtuskilyrði innandyra verða að vera viðunandi, hljóðvist góð, það verður að vera aðgengi að útivist, hreyfingu og íþróttum bæði innanhúss og í nágrenninu. Árangurinn af þessum þáttum hefur verið kannaður til dæmis í Danmörku en Danir eru komnir langt í þessum málum. Árangur af batamiðuðu húsnæði geðsjúkrahúsa sýnir færri nauðungarinnlagnir, færri lyfjagjafir, minni valdbeitingu. Síðan eru líka færri veikinda dagar starfsfólks og einnig auðveldara að fá fólk til starfa,“ segir Páll.
Í öðru lagi var það staðsetningin en Páll segir að tvö sjónarmið hafi verið uppi þegar kom að því að ræða staðsetningu geðþjónustuhússins. „Það var spenna á milli tveggja sjónarmiða þarna. Annars vegar þess að geðþjónustuhúsið yrði nálægt náttúru og hins vegar að það yrði nálægt öðrum deildum spítalans en það skiptir máli að svo sé vegna þess að fólk með geðræna sjúkdóma deyr 15-20 árum fyrr en aðrir úr sjúkdómum eins og hjarta- og æðasjúkdómum og krabbameinum og það er vegna þess meðal annars að aðgengi að heilbrigðisþjónustu er ekki nægilegt. Óhollt líferni á þarna einnig þátt, auðvitað, sem tengist þá oft sjúkdómnum eða því að fólk hefur ekki aðstöðu til að hugsa nógu vel um sig. Við finnum það vel að jafnvel þótt við séum núna alveg við spítalann á Hringbraut þá getur oft verið erfitt að fá almenna þjónustu fyrir okkar fólk. Þess vegna skiptir staðsetningin máli.“
Danir tóku umræðu um hvar væri best að byggja geðsjúkrahús fyrir um 15 árum og höfðu fyrirfram trú á geðþjónustuhúsum í fallegu og rólegu um hverfi fjærri borginni, en þeir viku síðan frá þeirri hugmynd, að sögn Páls.
„Það getur verið gott fyrir einhverja, eins og framkvæmdastjóra til að losa streitu að vera í rólegu og fallegu umhverfi fjærri borginni en það á ekki við um fólk með alvarleg veikindi, af hvaða toga sem þau eru. Þá skiptir greitt aðgengi miklu máli. Danir sneru seinna frá hugmynd sinni um að hafa geðsjúkrahús fjærri annarri heilbrigðisþjónustu. Þeir byggðu nýjan spítala, Skejby, rétt hjá Árósum en það sjúkrahús er reyndar eitt stærsta hús í heimi, en upphaflega átti geðdeildin ekki að vera þar heldur í Risskov, gömlu geðsjúkrahúsi, af því að þar var svo yndislegt umhverfi. Það síðan gekk ekki. Fjarlægðin bæði gerði það erfitt að fá almenna heilbrigðisþjónustu og ýtti líka undir tilfinningu um aðskilnað og að vera hliðsettur. Danir ventu sínu kvæði í kross og byggðu geðdeild og réttargeðdeild við Skejby og fluttu þjónustuna frá Risskov. Við litum meðal annars til þessarar reynslu og hefðum helst viljað hafa geðþjónustuhúsið við Hringbraut af þessum ástæðum. Niðurstaðan var hins vegar sú að þar er ekki pláss fyrir rúm gott, batamiðað húsnæði með grænum svæðum í kring.“
Í þriðja lagi þurfti að líta til þess hversu mörg rými þyrfti í nýju geðþjónustuhúsi. „Ég hafði verið í stýrihóp um vinnu sem McKinsey vann og skilaði árið 2020 og þar var uppfært mat á legurýmisþörf fyrir spítalann í heild og þar á meðal fyrir geðþjónustu. Ég var ósáttur við ýmislegt í þeirri vinnu og taldi að vinnubrögð McKinsey væru of einfeldnisleg. Þeir notuðu ekki réttar forsendur og voru ósveigjanlegir að breyta þegar betri upplýsingar komu í ljós. En þó kom fram hjá þeim að þar sem þyrfti að fjölga rým um væri á geðdeildinni. Við vorum með uppfærðar upplýsingar Hagstofunnar og sögðum að það þyrfti 160 rúm en tölur McKinsey endurspegluðu vanmat, m.a. á innflutningi fólks og fleira. Það var lítið hlustað á það þannig að við fengum á endanum hagdeild Landspítala til að vinna þetta og við miðum við 160 legurými í okkar hönnun og stöndum við það. Þeirra forsendur eru vandaðri og raunhæfari.
Við skoðuðum hvers konar rými þarf: skammtímarými, gjörgæslurými, rými fyrir þróun dag- og göngudeilda og fleira og töldum að það þyrfti um 20.000 fermetra undir starfsemina. Við skiluðum þessu svo af okkur.
Við skiluðum undirbúningi frumathugunar einnig af okkur. Ríkisstjórnin ákvað að það yrði farið í verkefnið og þá var komið að næsta skrefi sem var sjálf frumathugunin. White-arkitektar í Gautaborg, sem eru mjög reyndir á þessu sviði, tóku við og fengu með sér samstarfsaðila, annars vegar Landspítala og hins vegar Geðhjálp í þessa frumathugun. Vinnan var afar góð og vel gerð og í þessari greiningu voru mjög vanir arkitektar á þessu sviði. Í kjölfar vinnunnar skiluðu White-arkitektarnir skýrslu um hvernig deildirnar ættu að raðast upp, hvaða deildir ættu að vera nálægt hver annarri og svo mætti áfram telja. Arkitektarnir töldu að það þyrfti töluvert stærra rými, eða allt að 24.000 fermetra og afhentu stýrihóp Hringbrautarverkefnisins sem fór þá í málið og taldi þá endanlega ekki raunhæft að hafa geðþjónustuhúsið á Hringbraut. Það væri hægt að troða því þarna inn, en þá á seinni stigum, og þá þyrfti að rífa hús sem á reyndar að rífa að lokum en þetta gæti tafið málið um fimm til sex ár til viðbótar. Að auki væri þar ekki svigrúm til seinni tíma stækkunar.
Það var mælt með að geðþjónustuhúsið yrði ekki lengra í burtu en um 5 km frá spítalanum og farið var að skoða í samráði við Reykjavíkurborg að Fossvogurinn væri þá í raun eini staðurinn sem kæmi til greina.“
Vífilsstaðir höfðu á ákveðnum tímapunkti verið í umræðunni en sá bátur var löngu farinn. Það var um og fyrir 2015 sem var verið að velta þeim stað fyrir sér. Það var ríkisland en spítalinn gaf það í raun eftir til Garðabæjar auk þess sem Vífilsstaðir eru allt of langt í burtu. Það er eitt sem Hugarafl hefur bent á að skipti máli en það er að geðþjónustuhúsið verði staðsett nærri þar sem flestir notendur búa, og þá ekki síst þeir sem hafa alvarlega geðsjúkdóma og þurfa að hafa gott aðgengi að bráðamóttöku geðþjónustunnar, og það fólk býr ekki endilega í Garðabæ. Þannig að Fossvogurinn er meira miðsvæðis. Á því svæði komu tveir staðir til greina, annars vegar við skógræktina og hins vegar nær spítalanum sem Reykjavíkurborg taldi betri stað, meðal annars vegna hljóðvistar og mengunar frá bílaumferð nærri skógræktinni. Staðsetningin við spítalann varð fyrir valinu og var geðþjónustuhúsinu valinn staður sunnan og austan megin við gamla Borgarspítalann.“
„Það liggur fyrir hvað þarf að gera og nú er boltinn hjá borginni. Það er sátt um þessa lóð og sátt meðal notenda þjónustunnar og fagfólks og mikilvægt að borgin gefi svör sem fyrst um það. Málið mun síðan þurfa að fara fyrir samstarfsnefnd um opinber fjármál (SOF) og stjórnvöld þurfa þá að finna byggingunni rými innan fjármálaáætlunar ríkisins.
Þegar þetta liggur fyrir er hægt að fara í hönnunina og með öllu ætti það ekki að taka lengri tíma en eitt og hálft ár. Þannig að ef allt gengur vel gæti verið búið að hanna geðþjónustuhúsið og byggja um 2030, eins og meðferðarkjarnann og rannsóknarhúsið. Geðþjónustuhúsið er ekki flókin bygging í raun og það er alls ekki eins að byggja það og að byggja meðferðarkjarnann sem er gríðarlega flókið.“
Fyrir utan batamiðað geðþjónustuhús er einnig þörf á að fá fleiri legurými en of fá slík hafa haft mikla ókosti í för með sér sem kemur niður á þeim sem þurfa að nota þjónustuna. „Við erum nú með um 29 legurými fyrir 100.000 íbúa en nágrannalöndin eru með á bilinu 60-110 legurými. Ef við förum upp í 160 legurými þá erum við með tæplega 40 rými á hverja 100.000 íbúa sem er algert lágmark. Við erum með of fá rými núna sem leiðir til þess að fólk sem þarf innlögn kemst ekki í hana af því þröskuldurinn fyrir henni verður svo hár, þú þarft nánast að vera í lífshættu og svo er eilíft verið að útskrifa fólk fyrr en ráðlegt er.“
Ég verð að segja stjórnvöldum, bæði fyrrverandi og núverandi, til hróss að þau hafa sýnt þessu máli skilning og áhuga og Reykjavíkurborg hefur líka verið mjög styðjandi.“
Nú eru þarna þættir sem eru mjög áberandi er lúta að umhverfi, sem hafa kannski ekki verið mikið í umræðunni, eins og upplifun, litir, fyrir utan um hverfi, náttúru og hljóðvist. Það hljóta rannsóknir að liggja að baki sem styðja batamiðað umhverfi á þessu sviði?
„Þetta á við um aðra staði spítalans líka, þetta eru í raun sömu grundvallaratriðin. Það er auðveldara að fá starfsfólk, minna um veikindaforföll og það sem er enn mikilvægara er að það er auðveldara að fá fólk til að leggjast inn ef umhverfið er aðlaðandi. Batinn er síðan skjótari.
Bara það að hafa útsýni yfir eitthvert grænt og fallegt svæði hraðar bata, ekki einungis í tilviki sjúkdóma af geðrænum toga heldur líka þegar um líkamlega sjúkdóma er að ræða. Við þekkjum þetta líka hér. Ég barðist fyrir því þegar ég var framkvæmdastjóri geðsviðs árið 2013 að setja upp geðgjörgæsludeild en við fengum enga peninga til þess. Ég þurfti að fá „Á allra vörum“ til að safna með okkur en við nýttum fjármunina til að opna geðgjörgæsludeild í ársbyrjun 2014. Við vorum alltaf að reyna að auka virkni á deildum en fólk kvartaði og sagði ég fæ ekkert að gera, það er bara bið. Þá sáum við að það ægði saman fólki þarna með mismunandi vandamál. Í einu herbergi var kannski maður í geðrofi og gömul þunglynd kona í því næsta. Hún var hrædd við hann og ættingjar sem komu í heimsókn líka en átti hann ekki líka rétt á að fá að ná sér í friði, fjarri augum ættingjanna? Það var ýmislegt í þessum dúr.
Um 80% af tíma starfsfólksins fór svo í þá sem voru veikastir. Hinir fengu mun minni athygli og illa gekk að fylgja virkni prógrömmum. Geðgjörgæsla breytti öllu fyrir fólkið sem var þarna þegar hún var opnuð. Hún var falleg og margir gáfu vinnu sína, til dæmis hönnunina. Þarna var sérálma karla og kvenna, fullt af aðskildum virkniherbergjum og fleira. Nóg pláss þó að ekki væri aðgengi þar út í garð. Við gátum sýnt fram á að það dró um helming úr ofbeldisatvikum. Og á hinum deildunum var allt í einu friður til að setja upp og fylgja eftir virkni og meðferðarprógrömmum. Þetta er dæmi um að umhverfið er svo mikilvægur þáttur í meðferð.
Við vitum því að góðar aðstæður og umhverfi hefur áhrif, þannig að þegar nýtt geðþjónustuhús verður komið með þeim þáttum sem ýta undir bata þá mun það bæta mjög lífsgæði allra, bæði þeirra sem þurfa oft að leita þjónustunnar og þeirra sem koma sjaldan og einnig aðstandenda sem koma og þurfa þá ekki að skilja fólkið sitt eftir í ómögulegum aðstæðum. Þetta sýna rannsóknir, meðal annars dönsk rannsókn sem sýnir að batamiðuð hönnun geðdeilda dregur úr nauðungarvistun og innlögnum fækkar, bætir upplifun sjúklinga og líðan starfsfólks því auðvitað líður engum vel að sjá fólk í ómögulegum aðstæðum og að fólki líði illa. Þetta hefur verið löng vegferð en við höfum fengið jákvæðar viðtökur frá öllum aðilum og ég treysti því að svo verði áfram.“
Texti: Ragnheiður Linnet Mynd: Aðsend