September verður aftur gulur í ár þegar stofnanir, félagasamtök og aðrir samstarfsaðilar sameinast um að vekja athygli á geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Í Gulum september 2026 verður sérstök áhersla lögð á ungt fólk. Markmiðið er meðal annars að efla samtal um geðheilbrigði, hvetja ungt fólk til að leita stuðnings þegar á þarf að halda og minna okkur öll á mikilvægi þess að sýna hvert öðru athygli, umhyggju og aðgát.
Gulur september verður formlega opnaður þriðjudaginn 1. september í Háskólanum í Reykjavík. Á opnunarhátíðinni verður fjölbreytt dagskrá með ávörpum, tónlist og fræðslu. Þar verða jafnframt veittar viðurkenningar Lífsbrúar fyrir framlag til sjálfsvígsforvarna, annars vegar til einstaklings og hins vegar liðsheildar.
Að formlegri dagskrá lokinni verður markaðstorg samstarfs- og skipulagsaðila í Gulum september í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. Þar gefst gestum kostur á að kynna sér starf fjölbreyttra aðila sem vinna að geðrækt, stuðningi og sjálfsvígsforvörnum.
Í Gulum september verða fjölbreyttir viðburðir og verkefni víða um land. Skólar, vinnustaðir, íþrótta- og tómstundafélög, sveitarfélög, fyrirtæki og almenningur eru hvött til að taka þátt með sínum hætti.
Guli liturinn er tákn átaksins og stendur fyrir von, hlýju og samstöðu. Þátttaka getur meðal annars falist í því að klæðast gulu, lýsa upp byggingar, standa fyrir viðburðum eða nota tækifærið til að ræða líðan og minna á mikilvægi þess að leita eftir og veita stuðning.
Nánari upplýsingar um dagskrá, fræðsluefni og leiðir til þátttöku í Gulum september má finna á gulurseptember.is.