Sigríður Gísladóttir, formaður Geðhjálpar, framkvæmdastjóri Okkar heims og aðstandandi, segir frá reynslu sinni og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér að vera barn sem á nána aðstandendur sem eru að fást við geðrænar áskoranir. Hún er ekki aðeins að benda á það hvernig hlutirnir voru heldur kemur hún einnig fram með tillögur að lausnum. Með því að huga að börnum og vernda þau þá getum við komið í veg fyrir fjölmarga erfiðleika seinna á lífsleið þeirra.
Í októbermánuði standa Landssamtökin Geðhjálp fyrir vitundarvakningu um geðheilbrigðismál. Markmið átaksins er að skapa vettvang fyrir fólk til að segja sína skoðun á hvað það telur mikilvægast til að bæta geðheilsu og geðheilbrigðismál á Íslandi. Tekin voru viðtöl við þrjá einstaklinga með mismunandi reynslu af geðheilbrigðiskerfinu: notandi, aðstandandi og starfsmaður.
Á þann hátt gefst fólki kostur á að hlusta á reynslu og sjónarmið þessara einstaklinga og hefja umræður um þessi mál sem hafa því miður verið aftarlega í forgangsröðinni þegar kemur að heilbrigðis- og lýðheilsumálum. Við hvetjum almenning til að taka þátt og segja sína skoðun með því að fara á geðheilbrigdi.is og koma þar á framfæri hvað beri að setja í forgang í geðheilbrigðismálum á Íslandi.