Málþing Geðhjálpar um nýtt sjónarhorn í geðheilbrigðismálum
Þingsalir, Reykjavík Natura 1. febrúar 2018.
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda á verkefnisstjori@gedhjalp.is. Líka er hægt að skrá sig hérna á Geðhjálpar síðunni. Að loknu málþingi verður reikningur sendur í heimabanka.
Aðgangseyrir kr. 2.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.
Fundarstjóri: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir sviðsstjóri sálfræði við í HR
13.00 – 13.15 Opnunarávarp Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
13.15 – 14.00 Þörf breyttrar hugmyndafræði við stefnumótun og framkvæmd þjónustu Dainius Puras, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna í geðheilbrigðismálum og prófessor í barnageðlækningum og andlegri lýðheilsu við háskólann í Vilnius.
14.00 – 14.45 Heildræn sýn á manneskjuna: stefnumið andlegrar og líkamlegrar vellíðunar. Peter Kinderman, prófessor í klínískri sálfræði við Liverpool-háskóla og fyrrverandi formaður breska sálfræðingafélagsins.
14.45 – 15.00 Sjónarhorn notanda Jónína Sigurðardóttir, notandi geðheilbrigðisþjónustunnar
15.00 – 15.15 Kaffi
15.15 – 16.00 Fyrirframgerð ákvarðantaka í geðheilbrigðisþjónustu: tækifæri og áskoranir Fiona Morrissey, doktor í fyrirframgerðri ákvarðanatöku innan geðheilbrigðisþjónustunnar
16.00 – 16.15 Sjónarhorn notanda Ágúst Kristján Steinarsson, notandi geðheilbrigðisþjónustunnar
16.15 – 16.45 Pallborðsumræður Hrannar Jónsson, Dainius Puras, Peter Kinderman, Jónína Sigurðardóttir, Fiona Morrissey og Ágúst Kristján Steinarsson.