Skammdegið skellur alltaf svolítið þungt á okkur í janúar. Okkar svar við því er geðræktarátakið G-vítamín sem Geðhjálp hefur staðið fyrir á þorranum undanfarin ár. Markmiðið er sem fyrr að setja geðrækt á oddinn og árétta mikilvægi hennar hvern dag.

G-vítamíni er ætlað að styrkja geðheilsu landsmanna en um leið að fyrirbyggja bresti og verja okkur í mótbyr. Með daglegri inntöku G-vítamíns myndum við sterkara ónæmi, því þessi einföldu ráð eru verndandi þættir geðheilsu.
Í ár býðst öllum að ná sér í skjáhvílu með hvetjandi skilaboðum til að minna sig á það sem máli skiptir. Skjáhvíluna ásamt leiðbeiningum um hvernig megi hlaða henni niður er að finna á gvitamin.is.
Á hverjum degi átaksins birtast daglega góð ráð á gvitamin.is, Facebook og Instagram en einnig er hægt að skrá sig og fá ráðlagðan G-vítamín í tölvupósti þátttakendum að kostnaðarlausu.
G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Sjá nánar á landlaeknir.is og hedinn.org/lifsordin14
Við erum öll með geð og þurfum öll að hlúa að því, sérstaklega í skammdeginu.