Í júlí sl. kom út skýrsla í Nýja-Sjálandi. Þar voru birtar niðurstöður rannsóknar á aðbúnaði barna og fullorðinna í viðkvæmri stöðu sem höfðu verið í umsjón kirkjunnar og ríkisins á árunum 1950 til 2019. Niðurstöðurnar eru skelfilegar. Af þeim 650 þúsund börnum og fullorðnum í viðkvæmri stöðu, sem voru vistuð til lengri eða skemmri tíma á vegum þessara aðila, voru yfir 200 þúsund beitt líkamlegu-, kynferðislegu- og/eða andlegu ofbeldi.
Þann 12. júní 2021 skipaði þáverandi forsætisráðherra Íslands í samræmi við ályktun frá Alþingi nefnd sem var falið að safna saman ítarlegum upplýsingum um starfsemi stofnana fyrir fullorðið fatlað fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir og fullorðna með geðrænan vanda. Var nefndinni gert að leggja mat á afmörkun, umfang og markmið rannsóknarinnar. Sérstök áhersla skyldi lögð á aðbúnað og meðferð vistmanna á nýliðnum árum allt til dagsins í dag.
Niðurstöður nefndarinnar voru birtar á heimasíðu forsætisráðuneytisins þann 8. júní 2022.
Helstu niðurstöður nefndarinnar eru eftirfarandi:
Var velferðarnefnd Alþingis í framhaldinu falið að vinna úr þessum tillögum og ákveða næstu skref. Síðan eru liðnir 29 mánuðir. Geðhjálp og Þroskahjálp hafa ítrekað sent fyrirspurnir til velferðarnefndar, tekið málið upp á fundum með nefndinni og öðrum nefndum þingsins, skrifað forsætisráðherrum með reglulegu millibili, tekið málið upp í fjölmiðlum og rætt á fundum með þingflokkum stjórnar og stjórnarandstöðu. Ekkert hefur verið gert í málinu.
Á Íslandi er fjöldi fullorðinna einstaklinga sem samfélagið hefur algjörlega brugðist. Sumir þessara einstaklinga voru vistaðir til lengri eða skemmri tíma á stofnunum á vegum opinberra aðila (ríkis og sveitarfélag) hvar mannréttindi þeirra voru fótum troðin og lög brotin. Þetta á ekki aðeins við um einstaklinga sem dvöldu á stofnunum eða stöðum fyrir hálfri öld, heldur á þetta á einnig við um nútímann.
Að þingmenn hafi trassað það í 29 mánuði að rækja lágmarks skyldur sínar gagnvart þessu fólki og aðstandendum þeirra er til háborinnar skammar!
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri landssamtakanna Geðhjálpar