Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, segir að áherslan á gerð nýs geðþjónustuhúss þurfi að vera skýr og mikilvægt að ólíkir aðilar komi að ákvörðuninni, m.a. notendur, starfsfólk og aðstandendur. Páll vill leggja áherslu á að byggingin verði einföld og þjóni vel sínum tilgangi og að verkefnið frestist ekki óhóflega. Hann segir staðsetninguna góða í Fossvogi, bæði vegna gæða Fossvogsdals og vegna nálægðar við Landspítala.
Nýtt geðþjónustuhús Landspítala verður staðsett í Fossvogi og áformað er að byggingin og staðsetningin miðist við batamiðaða hönnun. Ljóst var að staðsetning á Hringbrautarsvæði fullnægði ekki kröfum um nútímageðþjónustuhús þar sem bæði umferð með tilheyrandi hávaða er of mikil og of langt í græn svæði til útivistar fyrir sjúklinga. Í skýrslu stýrihóps sem skipaður var um nýtt geðþjónustuhús segir: „Ákvörðun um að byggja nýtt geðhúsnæði utan Hringbrautarlóðar Landspítala byggir á ítarlegri valkostagreiningu og er í samræmi við tillögu
stýrihóps um skipulag framkvæmda við Nýjan Landspítala“.
Gert er ráð fyrir geðþjónustuhúsi þar sem húsnæðið sjálft ásamt umhverfi ýti undir bata sjúklinga, styðji við sjálfstæði þeirra en veiti öryggi og hlúi að félagslegum þáttum, reisn og sjálfstæði þeirra sem þar dvelja en litið var til geðþjónustuhúsa í ýmsum löndum Evrópu og þau heimsótt. Jafnframt að lögð verði áhersla á fremstu gæði varðandi aðbúnað og upplifun fólks, jafnt sjúklinga, starfsmanna sem og gesta. Litið hefur verið til geðþjónustuhúsa erlendis í tillögum. Líklegt er að hús Landspítalans, gamli Borgarspítalinn, verði áfram notað undir þjónustu af einhverju tagi.
Nýtt geðþjónustuhús verður staðsett í Fossvogi, hvað viltu segja um staðsetninguna, fullnægir hún þörfum geðþjónustuhúss um heilnæmt umhverfi með gróðri, gönguleiðum, kyrrð og fjarlægð við umferð?
„Ef við stígum aðeins til baka, af því að hugmyndin var upphaflega að Landspítali við Hringbraut myndi hýsa allar deildir Landspítala og geðdeildin er þar núna, þá hef ég verið hugsandi yfir því hvernig þetta er að þróast og líka hvernig geðdeildin þar er, eða byggingin, því það eru margar áskoranir þar inni fyrir þá sem þar dvelja. Mér finnst það mjög jákvætt skref að það sé farið úr þessu sérkennilega umhverfi sem er verið að skapa á Hringbraut þar sem verið er að byggja á hálfgerðri umferðareyju, einhverri eyju getum við alla vega sagt, þar sem spítalanum eru settar þröngar skorður af götunum í kring, s.s. Hringbraut og Snorrabraut. Þannig að svigrúmið er mjög lítið fyrir sjúklinga á geðdeild til að komast úr umferðinni til að fara í göngutúra í öruggu og heilsusamlegu umhverfi.
Það er vissulega hægt að fara yfir Eiríksgötu en þar er pínulítill þríhyrndur garður sem ber nafnið Bringan, milli Þorfinnsgötu og Snorrabrautar. Svo er það Klambratúnið, sem er í yfir 300 m fjarlægð frá geðdeildinni, þannig að það er nokkur fjarlægð ef hugsa á það sem meðferðargarð fyrir spítalann. En svo er hægt að horfa til gömlu garðyrkjustöðvarinnar við Laufásveg, fyrir ofan BSÍ, en austan við hana er lítill garður sem heitir Einarsgarður, en hann er líka í nokkurri fjarlægð frá geðdeildinni. Þegar ég heyrði að geðdeildin færi í Fossvoginn, þá hugsaði ég: þetta er alla vega mjög jákvætt skref. Þarna er andrými, nálægð við náttúru en það eru mikil gæði í Fossvoginum. Það hefur vissulega verið sótt að ákveðnum hluta hans eins og við Sléttuveg og Skógarveg, þar sem hefur verið talsverð uppbygging en það er enn býsna rúmgott þarna.
Ég myndi því segja að það væri mjög farsælt skref að ný geðdeild rísi þarna. Það er þó stór umferðaræð þarna við, með tilheyrandi mengun og hávaða, en ég held samt að ef við hefðum þessa tvo kosti, að byggja upp við Hringbraut eða þetta, þá myndi ég alltaf setja mitt atkvæði á Fossvoginn.“
Nú er fallegt umhverfi þarna og nálægð við sjúkrahús ágæt sem skiptir líka máli. Sérðu fyrir þér að einhver önnur stað setning hefði verið betri?
„Mér fannst Vífilsstaðir alltaf vera besti kosturinn. En þar hafa aðstæður breyst. En mér finnst það að færa geðdeildina inn í Fossvog jákvætt. Vissulega er hugmyndin um að öll starfsemi spítalans sé undir einu þaki þá farin og ég veit ekki hvað það þýðir fyrir starfsemi spítalans. En út frá umhverfissálfræði þá er þetta mjög jákvætt skref.
Ég tel einnig mjög skynsamlegt að hafa geðdeildina í nálægð við spítala en samkvæmt núverandi skipulagi spítalans við Hringbraut er hann mjög aðþrengdur af umferðarmannvirkjum og möguleikar til framtíðar uppbyggingar háðir takmörkunum. Það á einkum við ef gera á ráð fyrir umhverfinu sem viðurkenndum meðferðarþætti, sú nálgun hefur verið vanmetin um talsvert langa hríð en er sífellt að verða viðurkenndari innan sálfræði og læknisfræði.“
Það er gert ráð fyrir að byggingin verði 1-2 hæðir, hver er ástæðan?
„Ég held að þetta sé ekki síður spurning um aðgengi að náttúrunni. Ef hægt er að tryggja gott aðgengi út í náttúruna þá ættu tvær hæðir að vera í lagi. Þess vegna finnst mér vera mjög sterk rök fyrir því að legudeildir séu á neðri hæð þar sem fólk dvelur yfir lengri tíma en göngudeildir séu frekar á efri hæð. Í enda dagsins snýst þetta um velsæld, sjálfstæði, tilfinningu um sjálfræði og frelsi. Í þessu samhengi er þó mikilvægt að við leggjum áherslu á orðið „tilfinning“, því á stofnun sem þessari er sjálfræði og frelsi fólks óhjákvæmilega takmarkað að einhverju leyti.
Þess vegna er þeim mun mikilvægara að umhverfið styðji við upplifun fólks af reisn, vali og ákveðnu frelsi. Í þessu samhengi skiptir aðgengið því miklu máli. Ef þú ert á annarri hæð og það er erfitt og krefst fyrirhafnar að fara niður og komast út þá er strax kominn þáttur sem letur fólk, og það vinnur gegn batanum, reisninni og frelsistilfinningunni sem getur þá aftur haft enn neikvæðari áhrif á batann og sálrænt ástand. En auðvitað er það þannig að ef við reisum einnar hæðar byggingu þá verður hún miklu stærri að flatarmáli. Þarna þarf því að finna skynsamlega málamiðlun en áherslan ætti að vera á að veita fólki greiðan aðgang að náttúrunni og skapa einhvers konar frelsisupplifun. Ég tel að það ætti að vera mjög sterkt leiðarljós.“
„Maður bíður bara eftir útfærslunni, því þar liggur þetta allt. Það er nauðsynlegt að fleiri en arkitektar komi að verkefninu, annars gæti orðið ákveðið rof milli hönnunarinnar og þarfa þeirra sem nota bygginguna. Það er heldur ekki nóg að bera þetta eingöngu undir lækna sem eðli málsins samkvæmt eru, margir hverjir, kannski meira fókuseraðir á læknisfræðilega meðferð en umhverfið.
Læknisfræðin á 20. öldinni lagði mikla áherslu á lyfjameðferðir, tækjabúnað og aðra klíníska þætti, og spítalabyggingar urðu þá oft mjög sterílar. Það er nú að breytast og það er af ástæðu. Þess vegna er mikilvægt að fleiri sjónarmið komist að þegar nýja geðsjúkrahúsið verður útfært. Í því samhengi þyrfti að ræða t.d. við sálfræðinga og félagsfræðinga, en einnig að sjálfssögðu sjúklinga, aðstandendur og starfsfólkið á gólfinu. Við hönnun svona byggingar þarf sérstaklega að horfa til þessara þriggja síðastnefndu hópa. Allir þessir hópar verða fyrir beinum áhrifum af þeim ákvörðunum sem teknar verða.“
Skynupplifun eins og litir, birta, hitastig, en einnig hljóðvist, kyrrð, hvati til hreyfingar úti í fallegu umhverfi, eru atriði sem hafa sýnt að stuðli að færri nauðungarvistunum, minni lyfjagjöfum og færri veikindadögum starfsfólks. Þetta eru einnig atriði sem hefur verið sýnt fram á erlendis að hefur áhrif á bata þegar kemur að húsnæði.
Mun nýtt geðþjónustuhús fullnægja þessum kröfum eins og það lítur út fyrir að verði í dag?
„Nú hef ég ekki séð neinar teikningar af þessu og get því ekki lagt mat á útfærsluna enn sem komið er. En allir þessir þættir eru nauðsynlegir. Það sem er svo áhugavert þegar maður skoðar geðsjúkrahús, umhverfi þeirra og þær áherslur sem lagðar eru til grundvallar, er að þetta eru í raun sömu atriði og eiga við um allt skipulag og alla hönnun. Það er til dæmis talað um batamiðaða hönnun, en að mínu mati er hér fyrst og fremst bara verið að tala um manneskjulega hönnun.
En af því að sjúklingahópurinn er viðkvæmur þá er lögð sérstök áhersla á að gera umhverfið gott en í grunninn eru þetta sömu þarfir og allar manneskjur hafa. Þættir eins og góð birta og sólarljós skipta okkur miklu máli, sem og góð hljóðvist, góð loftgæði, aðgengi að náttúrunni og tækifæri til hreyfingar. Það er mjög jákvætt og sjálfsagt að þessar þarfir séu teknar alvarlega. Mér finnst þessar áherslur mjög góðar og í þéttum takti við fræðin, bæði sálfræðina og læknisfræðina.“
Fólk sem hefur dvalið á geðdeild Landspítala hefur kvartað undan því að húsnæðið komi í veg fyrir félagsleg samskipti og líkamlega hreyfingu. Mun nýi spítalinn skapa hvetjandi áhrif á fólk sem þar dvelur til félagslegra samskipta og ýta undir líkamshreyfingu og skapa tengsl við náttúruna en það er t.a.m. gert ráð fyrir inngörðum þar?
„Inngarðar eru góð hugmynd og eiga þeir mjög vel heima þarna. Í þessu samhengi þarf líka að huga að öryggi, enda er hér um viðkvæman hóp að ræða. Varðandi félagslegu hliðina þá er svo mikilvægt að við hugsum hana ekki annaðhvort eða heldur sem stigul frá einveru og yfir í samveru. Umhverfið þarf að bjóða upp á að fólk geti verið í einrúmi þegar það vill enda þurfa allir á slíku að halda á einhverjum tímapunkti. Svo þurfa að vera millirými, andrými eða hálfopin rými og sameiginleg almenningsrými. Allir þessir möguleikar þurfa að vera fyrir hendi.
Innan sameiginlega almenningsrýmisins þarf einnig að vera hægt að draga sig í hlé þannig að fólk þurfi ekki alltaf að vera mitt í hringiðunni. Það þarf að vera hægt að vera þátttakandi í samfélaginu án þess að vera virkur þátttakandi. Þannig getur fólk fylgst með, upplifað nálægð við aðra og verið séð, án þess að þurfa að taka virkan þátt. Við þekkjum þetta öll, við förum niður í bæ, setjumst undir húsvegg á kaffihúsi og fylgjumst með mannlífinu af því við viljum vera með án þess að sækjast eftir einhverri athygli. Ef við viljum sækjast eftir meiri athygli þá færum við okkur frá húsveggnum og meira inn á miðju rýmisins. Þetta snýst um að fólk hafi ákveðna stjórn á sínu umhverfi. Það er okkur mikilvægt og því verður að huga vel að þessum þáttum í skipulagi og hönnun umhverfis, sérstaklega í svona umhverfi þar sem fólk er oft og tíðum viðkvæmara.“
Hvað þarf til þess að gera geðþjónustuhúsið og umhverfi þess þannig að það sé á pari við önnur nútímageðþjónustuhús erlendis og stuðli að bata sjúklinganna og endi ekki sem hálfklárað verk, að það verði ekki bara fögur fyrirheit?
„Ég held að það sé mjög mikilvægt að setja skýrar forsendur strax í upphafi. Ekki einungis tæknilegar eða hönnunarlegar forsendur, heldur líka sálfræðilegar forsendur. Hvað á byggingin að geta gert fyrir fólkið sem notar hana og af hverju skiptir það máli? Það þarf að vinna út frá þessu og mikilvægt að alltaf sé hægt að leita í þessar forsendur gegn um allt ferlið. Í enda dagsins snýst þetta um manneskjuna. Þess vegna er mikilvægt að halda fókus á því fyrir hverja byggingin er og hvert sé hlutverk hennar. Á hinn bóginn leggja minni áherslu á „hönnunarfræðilegt afrek“ eða skapa eitthvert minnismerki um arkitektúr. Byggingin þarf að vera einföld og falleg og þjóna sínu hlutverki vel.
Stundum þarf að fara aftur í grunninn og tryggja að virkni og grunnþarfir séu uppfylltar áður en farið er í einhverjar „hönnunaræfingar“. Það verður líka að gæta þess að flýta ferlinu ekki svo mikið að það komi niður á undirbúningnum. Greina þarf sálfræðilegar þarfir fólks vel. Sé skýr mynd af þeim komin, þá er kominn mjög sterkur grunnur og þá raðast aðrir þættir betur í kringum hann. Ef ég má nefna eina starfstétt, sem ég hef unnið talsvert með, sem eru tölvunarfræðingar, þá leggja þeir oft mikla vinnu í að kortleggja verkefnið, þannig að þegar kemur að því að vinna það verður framvindan oft mjög markviss og skilvirk. Þetta verkefni þarf að undirbúa vel og fá breiðan hóp fólks að borðinu. Fólk verður að vera opið fyrir umræðu um hönnunina og gagnrýni, því sameiginlegir hagsmunir okkar allra felast í að þetta takist vel. Þetta þarf að vera samvinna en ekki kapp um hver hafi réttast fyrir sér. Verkfræðingar og arkitektar eru margir frábærir en það er ekki þar með sagt að þeir hafi svör við öllu.“
Hvað með umferð til og frá spítalanum þarna í Fossvogi, verði hann áfram, mun það hafa áhrif?
„Nei, ég hef nú ekki sérstakar áhyggjur af því. Staðurinn liggur nokkuð vel við og samgöngutengingar þarna eru góðar. Fossvogur inn er meira miðsvæðis en Landspítalinn við Hringbraut og aðgengi betra. Aðalstarfsemin verður vissulega á Hringbraut en mér finnst gleðilegt ef hægt er að finna not fyrir bygginguna í Fossvoginum. Þetta er tímamótabygging, á margan hátt mjög vel gerð og skemmtileg táknmynd síns tíma.“
„Í skýrslu starfshópsins um nýtt geðsjúkrahús er talað um sjálfræði, að fólk geti slökkt ljós og kveikt og opnað glugga. Þessir litlu þættir skipta gríðarlega miklu máli, vegna þess að þeir gefa fólki tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi sitt. Það styrkir sjálfstæði þess og tilfinningu um frelsi. Umræða um sjálfræði tengist líka því að fólk geti sjálft stjórnað þátttöku í félagslegu umhverfi, dregið sig í hlé eða leitað eftir samveru. Hönnunin þarf því að styðja við þessa upplifun, jafnvel þótt fólk sé innan ákveðins ramma.
Takmarkanir og hindranir þurfa auðvitað að gegna öryggishlutverki en þær eiga ekki stöðugt að senda þau skilaboð að fólk sé lokað inni og komist ekkert. Umhverfið þarf fremur að gefa fólki þá tilfinningu að það geti hagað sér á eigin forsendum innan þeirra marka sem nauðsynleg eru. Einnig ætti ekki að leggja meiri áherslu á aðskilnað milli hópa en nauðsynlegt er. Í skýrslunni er til dæmis rætt um að starfsfólk sé ekki meira aðskilið frá sjúklingum en þörf krefur. Við eigum ekki að skapa óþarfa stigskiptingu eða tilfinningu fyrir „okkur“ og „þeim“. Fólk kann yfirleitt ekki að meta að það sé sett í eitthvert hólf.“
Texti: Ragnheiður Linnet Mynd: Aðsend