Skjólshús / Peer respite

[English below] Geðhjálp stefnir að opnun athvarfs fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Þar verður hægt að dvelja tímabundið og njóta þjónustu á jafningjagrundvelli.

Geðhjálp vinnur að stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða nýtt úrræði þar sem boðið verður upp á skammtímadvöl í allt að 1-2 vikur, einstaklingum að kostnaðarlausu. Öll starfsemi skjólshússins fer fram á jafningja grundvelli þar sem allt starfsfólk og stjórn hússins er í höndum einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum.

Víða erlendis hefur gefið góða raun að bjóða upp á öruggt athvarf þangað sem fólk getur leitað þegar það treystir sér ekki til þess að vera heima vegna andlegrar krísu. Sem dæmi má nefna Afiya house í Massachusetts auk Soteria house og Alyssum í Vermont, Bandaríkjunum. Fólk sem upplifir öngstræti getur leitað til skjólshússins og gist í allt að tvær vikur á meðan það kemur fótunum undir sig.

Skjólshúshugmyndin er annar valmöguleiki í geðþjónustu á Íslandi þangað sem hægt væri að leita áður en fólk telur sig þurfa innlögn á geðdeild eða í staðinn fyrir slíka innlögn. Úrræðið er mikilvægur liður í að efla framboð og bjóða upp á fleiri valmöguleika til að grípa fólk í vanlíðan.

Grunngildi skjólshúsa eru sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins til að ráða eigin lífi, samvinna jafningja og trú á því að vöxtur og bati séu möguleg fyrir okkur öll. Starfsfólk skjólshúss vinnur eftir áfallamiðaðri nálgun, mannúð og mannréttindum. Einstaklingar leita í skjólshúsið á eigin forsendum, þeim er aldrei vísað þangað eða þvingaðir til þátttöku.

Engin þörf er á tilvísunum heldur bóka einstaklingarnir sjálfir upphafssamtal þar sem starfsemin er kynnt og ákvörðun er tekin í sameiningu hvort úrræðið henti viðkomandi aðila eða þeim bent á aðra staði sem gætu átt betur við í þeirra aðstæðum.

Mikil áhersla er lögð á að koma í veg fyrir valdbeitingu og engir fagaðilar vinna í skjólshúsinu nema þau hafi persónulega reynslu af andlegum áskorunum og séu tilbúin til að nýta hana markvisst í starfinu. Starfsfólk tekur ekki ábyrgð á lyfjagjöf og engin eiginleg meðferð fer fram í skjólshúsinu. Öll sem starfa í skjólshúsinu hafa lokið þjálfun í jafningjastuðningi (e. Intentional peer support) og mæta einstaklingunum með mennskuna í fyrirrúmi.

Tilgangur skjólshússins er fjórþættur

  1. Tryggja annan valkost í stað sjúkrahús dvalar fyrir þau sem hafa endurtekið leitað sér aðstoðar á geðdeild og/eða gætu átt erfiða, áfallatengda reynslu af fyrri sjúkrahúsinnlögn. Að sama skapi getur skjólshúsið gripið fólk fyrr í vanlíðunartímabilinu og jafnvel náð til einstaklinga sem myndu aldrei sjálfviljugir leita á geðdeild.
  2. Bjóða einstaklingum upp á tækifæri til að ganga í gegnum lífskrísu án inngripa. Slíkt ferðalag gefur færi á að finna þýðingu og tilgang upplifunarinnar í stað þess að forðast hana og leitast við að stöðva með öllum tiltækum ráðum.
  3. Skapa rými fyrir jafningjastuðning þar sem persónuleg reynsla af andlegum áskorunum er álitin dýrmæt og mikilsverð þekking sem getur reynst öðrum hjálpleg. Hér verða til atvinnu tækifæri og sveigjanleg störf fyrir fólk sem hefur þessa ómetanlegu sérfræðiþekkingu.
  4. Gefa færi á að vinna úr samfélagslegum meinum á borð við mismunun, jaðarsetningu og annað er varðar samfélagslegt óréttlæti.

Útfærslan sjálf

Skjólshúsið verður rekið í grónu íbúðahverfi og er heimilislegt einbýlishús með garði. Mikilvægt er að góðar samgöngur séu að skjólshúsinu og að það sé aðgengilegt. Við sjáum fyrir okkur að húsið væri staðsett á höfuðborgarsvæðinu til að sem flest sjái sér fært að nýta sér þennan valkost. Á meðan á dvölinni stendur getur fólk átt samtal á jafningjagrunni, náð jafnvægi, deilt von og bjargráðum og endurvakið drauma um betri framtíð.

Fólk velur sjálft hvers það þarfnast, en því stendur t.a.m. til boða rými til listsköpunar, jóga, tónlistar, hreyfingar og annarrar tómstundaiðju. Í skjólshúsum er fólki frjálst að koma og fara að vild. Hvert og eitt fær eigið herbergi þar sem þau geta haft sína persónulegu muni og leitað eftir samskiptum við annað fólk eftir þörfum. Einstaklingar geta haldið áfram að sinna störfum, námi eða annarri samfélagslegri þátttöku sem skiptir þau máli meðan á dvölinni stendur.

Kostnaðaráætlun

Búið er að útbúa kostnaðaráætlun sem er miðuð við starfsemi skjólshúss fyrir allt að 5 einstaklinga í senn. Unnið er á vöktum með sveigjanlegum hlutastörfum jafningja. Það eru aldrei færri en tveir á hverri vakt til að geta mætt ófyrirséðum aðstæðum og staðið undir ábyrgðarhlutverki sínu. Gert er ráð fyrir 7 stöðugildum, 1 leiðtoga og 6 jafningjum.

Markhópur

Úrræðið er ætlað hverjum þeim sem er orðinn 18 ára að aldri og er að ganga í gegnum krefjandi tímabil vegna andlegra áskorana. Allt að 3-5 einstaklingar geta gist í skjólshúsinu hverju sinni. Ekki er gerð krafa um að fólk sé án vímuefna, heldur eru reglur um að neyta ekki vímuefna í húsinu og ekki vera í þannig ástandi að það hafi truflandi áhrif á starfsemi skjólshússins.

Samfélagslegur ávinningur

Gríðarleg þörf er á slíku úrræði þar sem sífellt fleira fólk tekst á við andlegar áskoranir. Hingað til hefur einungis einn valkostur staðið þessum hópi til boða, þegar horft er til sólarhrings dvalar. Skjólshús byggir á annarri hugmyndafræði sem miðlar jafningjareynslu og bata. Ávinningurinn af því að vinna með ofangreindum hætti er sá að fólk fær aðstoðina þegar það leitar sér hjálpar, og á sínum forsendum.

Sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins er í fyrirrúmi og líklegt að við komandi nái fyrr jafnvægi, gefandi tengslum og virkri sam félagsþátttöku. Að sama skapi verður hér til fjöldi nýrra starfa, bæði hluta störf og full störf. Störfin bjóða fólki með persónulega reynslu af andlegum áskorunum upp á tækifæri til að nýta þekkingu sína til góðs, fara aftur út á vinnumarkað og skapa aukin félagsleg verðmæti, auk fjárhagslegs ávinnings.

Ítarefni

Heimildarmynd um Afiya house (25 mín) á YouTube: https://youtu.be/9x8h3LvEB04?si=XrwfFFh1YmO5aKCm
Heimasíða Afiya house: https://wildfloweralliance.org/afiya/
Um jafningjastuðning (e. Intentional peer support): https://www.intentionalpeersupport.org/


Peer-run respite

Geðhjálp aims to open a respite for people in emotional crises due to mental health challenges. There, individuals will be able to stay temporarily and receive peer-based support.

Geðhjálp is working on establishing a respite for people in emotional crisis due to mental health challenges. This is a new type of program that will provide short-term stays of up to 1-2 weeks, free of charge for individuals. All activities in the respite will be peer-based, with the staff and the house management made up entirely of people with personal experience of mental health challenges.

Internationally, it has proven valuable to provide a safe haven for people who do not feel able to stay at home during a mental health crisis. Examples include Afiya House in Massachusetts, as well as Soteria House and Alyssum in Vermont, USA. People who find themselves in acute distress can turn to the respite and stay there for up to two weeks while regaining their footing. The respite model represents another option within Iceland’s mental health services – somewhere people can turn before they feel a need for admission to a psychiatric ward, or instead of such an admission. This resource is an important step in expanding the range of options available to support people in distress.

The core values of respites are the individual’s right to self-determination, peer collaboration, and a belief that growth and recovery are possible for everyone. The staff work according to a trauma-informed approach, grounded in humanity and human rights. People come to the respite on their own terms and are never referred there or forced to participate.

No referrals from doctors are required to use the option. Individuals book an initial conversation themselves, where the program is introduced and a joint decision is made on whether the resource suits the person’s situation, or whether another option might be more appropriate.

A strong emphasis is placed on preventing coercion. No professionals work in the respite unless they also have personal experience of mental health challenges and are prepared to use that experience intentionally in their work. Staff do not take responsibility for administering medication, and no formal treatment takes place in the respite. All staff have completed training in Intentional Peer Support and meet individuals first and foremost with humanity.

The purpose of the respite is fourfold

  1. To ensure an alternative to hospital admission for people who have repeatedly sought help from psychiatric wards and/or may have had difficult, trauma-related experiences of previous hospitalizations. At the same time, the respite can support people earlier in their period of distress and even reach individuals who would never voluntarily seek admission to a psychiatric ward.
  2. To offer individuals an opportunity to go through a life crisis without interventions. Such a journey allows for finding meaning and purpose in the experience, instead of avoiding it or attempting to stop it at all costs.
  3. To create a space for peer support, where personal experience of mental health challenges is valued as important knowledge that can be of help to others. This also creates job opportunities and flexible roles for people with this invaluable expertise.
  4. To provide a platform for addressing social issues such as discrimination, marginalization, and other forms of social injustice.

Implementation

The respite will be in a residential neighbourhood, a warm house in a residential area with a garden. It is important that the peer run respite be easily accessible by different modes of transportation. We envision the house being in the capital area so that as many people as possible can make use of this option. During their stay, people can have peer-based conversations, regain balance, share hope and coping strategies, and rekindle dreams of a better future. Each person chooses what they need, with opportunities for art, yoga, music, exercise, and other leisure activities. In respite houses, people are free to come and go as they wish. Each guest has their own room where they can keep personal belongings and seek social interaction as needed. Guests can also continue working, studying, or participating in other community activities important to them during their stay.

Budget

A cost estimate has been prepared for a respite house accommodating up to five people at a time. Staffing is organized in shifts, with flexible part-time peer positions. There are always at least two staff members per shift, to handle unforeseen situations and uphold their responsibilities. The plan includes seven full-time equivalents: one leader and six peers.

Target group

The resource is open to anyone aged 18 or older who is going through a challenging period due to mental health struggles. The house can accommodate 3-5 guests at a time. Abstinence from substances is not required, but rules stipulate that no substances may be used on the premises, and no one may be under the influence in a way that disrupts the sanctuary’s activities.

Social benefit

There is a great need for a resource like this, as more and more people face mental health challenges. Until now, only one option has been available to this group when it comes to 24-hour support. The respite is based on a different philosophy, one that emphasizes peer experience and recovery.

The benefit of working in this way is that people receive help when they reach out for it – and on their own terms. The individual’s right to self-determination is at the forefront, and they are more likely to regain balance, form meaningful connections, and re-engage in active participation in society.

Further resources

Documentary on Afiya house (25 minutes) on YouTube: https://youtu.be/9x8h3LvEB04?si=XrwfFFh1YmO5aKCm
Afiya house website: https://wildfloweralliance.org/afiya/
About Intentional Peer Support: https://www.intentionalpeersupport.org/

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram