19. september 2025

Skjólshús rekið af jafningjum

Geðhjálp stefnir að opnun athvarfs fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Þar verður hægt að dvelja tímabundið og njóta þjónustu á jafningjagrundvelli.

Geðhjálp vinnur að stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða nýtt úrræði þar sem boðið verður upp á skammtímadvöl í allt að 1-2 vikur, einstaklingum að kostnaðarlausu. Öll starfsemi skjólshússins fer fram á jafningja grundvelli þar sem allt starfsfólk og stjórn hússins er í höndum einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum.

Víða erlendis hefur gefið góða raun að bjóða upp á öruggt athvarf þangað sem fólk getur leitað þegar það treystir sér ekki til þess að vera heima vegna andlegrar krísu. Sem dæmi má nefna Afiya house í Massachusetts auk Soteria house og Alyssum í Vermont, Bandaríkjunum. Fólk sem upplifir öngstræti getur leitað til skjólshússins og gist í allt að tvær vikur á meðan það kemur fótunum undir sig. Skjólshúshugmyndin er annar valmöguleiki í geðþjónustu á Íslandi þangað sem hægt væri að leita áður en fólk telur sig þurfa innlögn á geðdeild eða í staðinn fyrir slíka innlögn. Úrræðið er mikilvægur liður í að efla framboð og bjóða upp á fleiri valmöguleika til að grípa fólk í vanlíðan.

Grunngildi skjólshúsa eru sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins til að ráða eigin lífi, samvinna jafningja og trú á því að vöxtur og bati séu möguleg fyrir okkur öll. Starfsfólk skjólshúss vinnur eftir áfallamiðaðri nálgun, mannúð og mannréttindum. Einstaklingar leita í skjólshúsið á eigin forsendum, þeim er aldrei vísað þangað eða þvingaðir til þátttöku.

Engin þörf er á tilvísunum heldur bóka einstaklingarnir sjálfir upphafssamtal þar sem starfsemin er kynnt og ákvörðun er tekin í sameiningu hvort úrræðið henti viðkomandi aðila eða þeim bent á aðra staði sem gætu átt betur við í þeirra aðstæðum.

Mikil áhersla er lögð á að koma í veg fyrir valdbeitingu og engir fagaðilar vinna í skjólshúsinu nema þau hafi persónulega reynslu af andlegum áskorunum og séu tilbúin til að nýta hana markvisst í starfinu. Starfsfólk tekur ekki ábyrgð á lyfjagjöf og engin eiginleg meðferð fer fram í skjólshúsinu. Öll sem starfa í skjólshúsinu hafa lokið þjálfun í jafningjastuðningi (e. Intentional peer support) og mæta einstaklingunum með mennskuna í
fyrirrúmi.

Tilgangur skjólshússins er fjórþættur

  1. Tryggja annan valkost í stað sjúkrahús dvalar fyrir þau sem hafa endurtekið leitað sér aðstoðar á geðdeild og/eða gætu átt erfiða, áfallatengda reynslu af fyrri sjúkrahúsinnlögn. Að sama skapi getur skjólshúsið gripið fólk fyrr í vanlíðunartímabilinu og jafnvel náð til einstaklinga sem myndu aldrei sjálfviljugir leita á geðdeild.
  2. Bjóða einstaklingum upp á tækifæri til að ganga í gegnum lífskrísu án inngripa. Slíkt ferðalag gefur færi á að finna þýðingu og tilgang upplifunarinnar í stað þess að forðast hana og leitast við að stöðva með öllum tiltækum ráðum.
  3. Skapa rými fyrir jafningjastuðning þar sem persónuleg reynsla af andlegum áskorunum er álitin dýrmæt og mikilsverð þekking sem getur reynst öðrum hjálpleg. Hér verða til atvinnu tækifæri og sveigjanleg störf fyrir fólk sem hefur þessa ómetanlegu sérfræðiþekkingu.
  4. Gefa færi á að vinna úr samfélagslegum meinum á borð við mismunun, jaðarsetningu og annað er varðar samfélagslegt óréttlæti.

Útfærslan sjálf

Skjólshúsið verður rekið í grónu íbúðahverfi og er heimilislegt einbýlishús með garði. Mikilvægt er að góðar samgöngur séu að skjólshúsinu og að það sé aðgengilegt. Við sjáum fyrir okkur að húsið væri staðsett á höfuðborgarsvæðinu til að sem flest sjái sér fært að nýta sér þennan valkost. Á meðan á dvölinni stendur getur fólk átt samtal á jafningjagrunni, náð jafnvægi, deilt von og bjargráðum og endurvakið drauma um betri framtíð. Fólk velur sjálft hvers það þarfnast, en því stendur t.a.m. til boða rými til listsköpunar, jóga, tónlistar, hreyfingar og annarrar tómstundaiðju. Í skjólshúsum er fólki frjálst að koma og fara að vild. Hvert og eitt fær eigið herbergi þar sem þau geta haft sína persónulegu muni og leitað eftir samskiptum við annað fólk eftir þörfum. Einstaklingar geta haldið áfram að sinna störfum, námi eða annarri samfélagslegri þátttöku sem skiptir þau máli meðan á dvölinni stendur.

Kostnaðaráætlun

Búið er að útbúa kostnaðaráætlun sem er miðuð við starfsemi skjólshúss fyrir allt að 5 einstaklinga í senn. Unnið er á vöktum með sveigjanlegum hlutastörfum jafningja. Það eru aldrei færri en tveir á hverri vakt til að geta mætt ófyrirséðum aðstæðum og staðið undir ábyrgðarhlutverki sínu. Gert er ráð fyrir 7 stöðugildum, 1 leiðtoga og 6 jafningjum.

Markhópur

Úrræðið er ætlað hverjum þeim sem er orðinn 18 ára að aldri og er að ganga í gegnum krefjandi tímabil vegna andlegra áskorana. Allt að 3-5 einstaklingar geta gist í skjólshúsinu hverju sinni. Ekki er gerð krafa um að fólk sé án vímuefna, heldur eru reglur um að neyta ekki vímuefna í húsinu og ekki vera í þannig ástandi að það hafi truflandi áhrif á starfsemi skjólshússins.

Samfélagslegur ávinningur

Gríðarleg þörf er á slíku úrræði þar sem sífellt fleira fólk tekst á við andlegar áskoranir. Hingað til hefur einungis einn valkostur staðið þessum hópi til boða, þegar horft er til sólarhrings dvalar. Skjólshús byggir á annarri hugmyndafræði sem miðlar jafningjareynslu og bata. Ávinningurinn af því að vinna með ofangreindum hætti er sá að fólk fær aðstoðina þegar það leitar sér hjálpar, og á sínum forsendum. Sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins er í fyrirrúmi og líklegt að við komandi nái fyrr jafnvægi, gefandi tengslum og virkri sam félagsþátttöku. Að sama skapi verður hér til fjöldi nýrra starfa, bæði hluta störf og full störf. Störfin bjóða fólki með persónulega reynslu af andlegum áskorunum upp á tækifæri til að nýta þekkingu sína til góðs, fara aftur út á vinnumarkað og skapa aukin félagsleg verðmæti, auk fjárhagslegs ávinnings.

Ítarefni

Heimildarmynd um Afiya house (25 mín) á YouTube: https://youtu.be/9x8h3LvEB04?si=XrwfFFh1YmO5aKCm
Heimasíða Afiya house: https://wildfloweralliance.org/afiya/
Um jafningjastuðning (e. Intentional peer support): https://www.intentionalpeersupport.org/

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram