Ari Hróðmarsson er menntaður tónlistarmaður með B.Mus-gráðu frá CvA í Amsterdam og M.Mus-gráðu frá Listaháskóla Íslands, auk frekara náms á Spáni og í Þýskalandi. Hann hefur starfað sem sjálfstæður básúnuleikari og hljómsveitarstjórnandi og kennt fræðigreinar við Listaháskóla Íslands og Tónskóla Sigursveins.
Ari greindist með geðhvörf árið 2016 og hefur síðan unnið markvisst að því að auka vitund um geðrænar áskoranir. Hann talar opinskátt um reynslu sína og styður fólk sem glímir við svipaðar aðstæður. Í dag starfar hann sem jafningi á Geðgjörgæslu Landspítala og hefur þar öðlast víðtæka reynslu af stuðningi við fólk í viðkvæmri stöðu. Ari bauð sig fram til stjórnar Geðhjálpar með það að markmiði að leggja sitt af mörkum til öflugs og áhrifaríks starfs, byggt á bæði faglegri þekkingu og persónulegri reynslu.