Bergþór Grétar Böðvarsson hefur víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum, fyrst sem notandi kerfisins eftir að hafa greinst með geðsjúkdóm (eins og það var kallað á þeim tíma), síðan aðstandandi manneskju með geðsjúkdóm og svo sem notandi í úrræðum á borð við Klúbbinn Geysi, Hugarafl og Hlutverkasetur.
Síðustu ár hefur Bergþór starfað á geðsviði LSH og í Geðheilsuteymi Heilsugæslunnar og sem kennari í Bataskólanum. Hann hefur setið í Réttindavakt Velferðarráðuneytisins fyrir hönd Geðhjálpar því hann hefur ætíð haft mikinn áhuga á réttindum notanda þjónustunnar og vil koma því í gegn að farið verði eftir þeim.