Guðný Guðmundsdóttir starfar sem verkefnastjóri hjá Geðhjálp. Guðný starfaði áður í vefteymi á markaðssviði Marel, auk þess sem hún var ritstjóri samfélagsmiðladeildar hjá PIPAR/TBWA auglýsingastofu. Hún er með BA-gráðu í ensku og MA-gráðu í hagnýtri ritstjórn frá Háskóla Íslands, sem og MA-gráðu í útgáfu frá Anglia Ruskin University í Cambridge, Englandi. Guðný hefur lengi vel haft áhuga á geðheilsu en hún skrifar bloggpistla um sjálfsrækt, heilsu og andleg málefni á gudnyg.is.