12. október 2026

Svo lengi sem það er ekki í mínu nærumhverfi

Úrræði sem fólk með geðrænar áskoranir reiðir sig á mæta gjarnan andstöðu almennings sem telur staðsetningu þeirrar þjónustu sem um ræðir hverju sinni óæskilega. Fólk er þá ekki andsnúið þjónustunni sem slíkri heldur því að hún sé staðsett í þeirra eigin nærumhverfi. Í þessu samhengi ber hugtakið NIMBY, sem er stytting á enska heitinu Not In My Backyard, „ekki í mínum bakgarði“ á íslensku, gjarnan á góma og er þá nefnt sem lýsing á andstöðunni. Við vörpum hér ljósi á þetta tiltekna hugtak og setjum það í íslenskt samhengi í spjalli við Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Samhjálpar sem ekki hefur farið varhluta af NIMBY-viðhorfum.

Guðrún Ágústa var ekki að stíga sín fyrstu skref í tengslum við meðferðarstarf þegar hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Samhjálpar. „Ég vann sem dagskrárstjóri á Teigi fyrir að verða 30 árum síðan og eftir farsælan og fjölbreyttan starfsferil hafði ég mikinn áhuga á að snúa aftur til baka og vinna hjá Samhjálp. Upphaflega hafði ég hugsað mér að sækja um sem vaktmaður á Hlaðgerðarkoti en málin hins vegar þróuðust þannig að breytingar urðu hjá mér á sama tíma og starf framkvæmdastjóra var auglýst og því lá beinast við að sækja um það,“ segir hún um ástæðu þess að leiðin lá til Samhjálpar.

Guðrún Ágústa segir að það að fá að vera partur af og þátttakandi í að byggja upp það dýrmæta samfélag sem Samhjálp er sé hennar ástríða og drifkrafturinn sem leiðir hana áfram í starfi sem framkvæmdastjóri samtakanna. „Það eru forréttindi að fá að vera hluti af Samhjálp, taka þátt í því faglega starfi sem er unnið innan samtakanna og fá að fylgjast með fólki ná aftur fótfestu í lífinu, að ná bata, og fá að finna þann kærleika sem einkennir Samhjálp.“ Fyrir þau sem ekki þekkja spannar saga Samhjálpar yfir fimm áratugi af meðferðarstarfi í Hlaðgerðarkoti, rekstri Kaffistofu Samhjálpar og áfangaheimila, samkomuhaldi og stuðningi við fólk í erfiðum aðstæðum

„Samhjálp var stofnuð af fólki úr Hvítasunnukirkjunni og er almannaheillafélag sem er rekið án hagnaðarsjónarmiða og með kærleika Jesú Krists að leiðarljósi. Tilgangur og markmið félagsins er að hjálpa einstaklingum sem halloka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála, og stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra,“ segir Guðrún Ágústa nánar um starfsemi samtakanna.

Óttinn við hið óþekkta

Guðrún Ágústa segist merkja að viðhorf samfélagsins til þeirra sem sækja þjónustu Samhjálpar hafi tekið allnokkrum breytingum á síðustu árum, sumar jákvæðar, aðrar neikvæðar. Í þeim orðum má finna ákveðna hliðstæðu við það sem fram hefur komið í fordómarannsóknum hér á landi sem sýna að þrátt fyrir jákvæða þróun á milli ára, þ.e. að dregið hafi úr fordómum gagnvart fólki í jaðarsettum hópum, þá séu fordómar enn til staðar og enn töluverðir. Þetta má sjá þegar gögn úr mælingum á fordómum almennings á Íslandi eru borin saman en slíkar mælingar voru framkvæmdar í fyrsta skipti hér á landi árið 2006 sem hluti af alþjóðlegri rannsókn sem Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, stýrði.

Undir hennar forystu var mælingin svo endurtekin 2022 til 2023 að frumkvæði Geðhjálpar sem fjármagnaði verkefnið og var þá jafnframt tekin sú ákvörðun að halda því áfram á tveggja ára fresti. Árið 2025 vann Sigrún því enn á ný að fordómarannsókn hér á landi ásamt prófessorunum Jóni Gunnari Bernburg og Kára Kristinssyni og var það aftur Geðhjálp sem fjármagnaði vinnuna. Slíkar rannsóknir veita mikilvæg gögn og dýrmæta innsýn í það hvernig viðhorf almennings þróast yfir ákveðið tímabil.

Rannsóknin 2022–2023 leiddi til að mynda í ljós að dregið hafði úr fordómum gagnvart þunglyndi frá því árið 2006 en sömu þróun var hins vegar ekki að sjá þegar skoðaðir voru fordómar gagnvart geðklofa, sem virtust breytast hægar og síður á því tímabili. Niðurstöður rannsóknarinnar sem gerð var 2025 sýndu hins vegar jákvæðari þróun á viðhorfi hvað það varðar en þá sýndu mælingar í fyrsta sinn að dregið hafði úr fordómum almennings gagnvart einstaklingum með geðklofa. Af slíkri þróun má dæma að margt hafi unnist í baráttunni við fordóma en baráttunni er þó langt því frá lokið. Enn ríkir ótti í samfélaginu gagnvart fólki, eða nálægð við fólk, sem tilheyrir jaðarsettum hópum. En hver skyldi raunveruleg ástæða þess ótta vera? Af hverju stafar hann?

„Hluti af ástæðunni fyrir því að fólk óttast nágrenni við jaðarsetta hópa og ný úrræði sem ætluð eru til að styðja við þá er vegna þess að þessir hópar eru faldir; þeir eru ekki sýnilegir í daglegu lífi,“ svarar Guðrún Ágústa. Óttinn er því við hið ókunna. Hann stafar mun fremur af ófullnægjandi þekkingu en beinni reynslu af hópnum. Hún tekur fram að úrræðin sem um ræðir geti verið fjölbreytt og á vegum ýmissa aðila og nefnir í því samhengi Geðhjálp, Vernd, Samhjálp og búsetuúrræði fyrir fatlað fólk sem dæmi. Einnig segir hún að líklega megi greina blæbrigðamun á viðbrögðum almennings eftir því hvers konar úrræði sé um að ræða en að þau geti verið ýmiss konar.

„Þau geta verið allt frá því að fólk hefur áhyggjur af því að fasteignir þess falli í verði, af ónæði af starfseminni yfir í ótta við einstaklingana sjálfa sem sækja þá þjónustu sem á að bjóða.“ Slík NIMBYviðhorf hafa verið skýrð með fordómum og ótta við breytingar því þrátt fyrir að áhyggjur fólks, t.d. af því að úrræði geti rýrt virði eigna þess eða skert lífsgæði þess, séu raunverulegar tengjast þær því að jaðarsettir hópar falla milli þils og veggjar og verða þar með partur af hinu ókunna og þar með einhverju sem fólk hræðist, líkt og Guðrún Ágústa hefur bent á. Annað sjónarhorn sem hún bendir á í samhengi við hvaðan ótti fólks stafi tengist áhrifum fjölmiðla. „Svo eru það fjölmiðlarnir,“ segir hún og heldur svo áfram. „Þeir flytja almenningi fréttir, sem eru í eðli sínu neikvæðar, og ýta þar með undir ótta við fólk sem tilheyrir þessum jaðarsettu hópum.“

Gestir Kaffistofunnar ekki hættulegir

Nýliðið sumar mátti sjá umræðu um starfsemi Kaffistofu Samhjálpar þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í júní byggingarleyfi hennar úr gildi á þeim grundvelli að deiliskipulag hefði ekki legið fyrir. Þá höfðu einnig heyrst raddir frá fólki sem tilheyrði hópi íbúa og fyrirtækja í hverfinu sem höfðu áhyggjur af staðsetningunni. Um Kaffistofu Samhjálpar segir Guðrún Ágústa: „Það virðist vera útbreiddur misskilningur að gestir Kaffistofu Samhjálpar séu hættulegir. Staðreyndin er nefnilega sú að við þjónum afar fjölbreyttum hópi og ef við horfum bara á gesti Kaffistofunnar þá endurspeglar hann mjög vel þessa fjölbreytni. Þangað sækir fólk sem glímir við allt frá erfiðum félagslegum aðstæðum, fátækt, húsnæðisóöryggi, áskorunum tengdum líkamlegri eða andlegri heilsu til flókins vímuefnavanda og fíknar.“ Hún heldur áfram.

„Okkar reynsla er sú að þegar við komum fram við fólk af virðingu, sýnum fólki þá virðingu að bjóða fram fallegt og hlýlegt húsnæði sem er sýnilegt og þar sem sólarljós og birta komast inn, skapar það betri líðan og veitir fólki þá tilfinningu að það tilheyri mannlegu samfélagi,“ segir hún og leggur áherslu á það mikilvæga sjónarhorn að um leið hagi fólk sér í samræmi við það. Hegðunin endurspeglar þá virðingu sem það fær og þá virðingu sem það sjálft ber fyrir úrræðinu og þeirri þjónustu sem því býðst þar.

Fræðsla og aftur fræðsla

En hvað er til ráða? Hver er að þínu mati besta leiðin til að draga úr ótta fólks gagnvart þeim sem hallað hefur á í lífinu og minnka þannig NIMBY-áhrif? „Ég legg yfirleitt áherslu á að „þetta“ fólk er ekkert öðruvísi en við. Ef við höfum ekki sjálf þurft að takast á við fíknisjúkdóma eða geðrænar áskoranir eða afleiðingar slíkra áskorana þá þekkjum við, að minnsta kosti flest okkar, einhvern sem er eða hefur tekist á við fíknisjúkdóm og/eða geðrænar áskoranir. Ef við höfum ekki enn kynnst þessari hlið veruleikans eða fundið okkur í þessum sporum erum við bara einu áfalli frá því að þurfa á þessari þjónustu að halda sjálf,“ segir Guðrún Ágústa afdráttarlaust.

Hún segir fræðslu vera leið til þess að hafa áhrif á að viðhorf breytist til hins betra gagnvart fólki sem glímir við geðrænar áskoranir og/eða fíknivanda. „Fræðsla og aftur fræðsla er svarið,“ segir hún en leggur áherslu á mikilvægi þess að hún sé með jákvæðum formerkjum. „Ekki þar sem verið er að velta sér upp úr neyslutímanum, heldur fræðsla sem miðar að því að segja hvað hefur breyst, segja frá voninni. Í því samhengi er mikilvægt að fá einstaklinga sem náð hafa að snúa við blaðinu til að segja sögu sína, hvað það var sem varð til þess að þau gátu snúið við blaðinu. Það er nefnilega svo að fáfræði er kjörin gróðrarstía fyrir ótta og fordóma,“ segir hún og bætir svo við: „Okkar reynsla er sú að allt samtal er af hinu góða og gefur tækifæri til að útskýra og leiðrétta misskilning og segja frá jákvæðri reynslu sem mótvægi við þann ótta sem fólk hefur.“

Þegar Guðrún Ágústa horfir fram á veginn sér hún Samhjálp vaxa og dafna. „Við vonumst til þess að geta verið komin í varanlegt framtíðarhúsnæði eftir fimm ár, þar sem við getum verið með allt á einum stað: eldhúsið, birgðahaldið og þjónustuna.“ Hún segir að stjórnvöld gætu stutt betur fjárhagslega við starf eins og það sem Samhjálp vinnur, án þess þó að slakað sé á kröfum. „Við viljum alls ekki fá neinar undanþágur frá kröfum um aðbúnað eða hollustuhætti, eins og á Kaffistofunni, en það væri okkur dýrmætt að geta sótt í styrki til að auðvelda okkur reksturinn og bæta þjónustuna enn betur með því að geta ráðið fleira fólk sem sinnt getur því sem við erum að gera,“ segir hún áður en hún bætir við að lokum að þjónusta Samhjálpar sé í sífelldri þróun og að það séu spennandi tímar fram undan, hvort sem um er að ræða Kaffistofu Samhjálpar, meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot eða áfangaheimilin.

Texti: Lýdía Huld Grímsdóttir Mynd: Aðsend

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram