Í dag, 12. ágúst 2026, verður almyrkvi á sólu.
Þegar dimmir yfir í líðan okkar getur verið erfitt að muna hvað hjálpar. Í tilefni af almyrkvanum viljum við hjá Geðhjálp minna á að þótt sólin hverfi um stund er hún enn á sínum stað. Þá skiptir máli að vita að hjálpin er til staðar. Við höfum öll okkar leiðir til að sækja styrk og takast á við erfiða daga. Því betur sem við þekkjum það sem hjálpar okkur, því auðveldara er að grípa til þess þegar á reynir.
Líðan breytist ekki alltaf skyndilega. Oft byrja breytingarnar smátt og smátt. Minni orka. Minni þolinmæði. Minni áhugi á því sem við höfum venjulega ánægju af. Þegar dagarnir verða þungir getur verið erfitt að muna hvað hefur hjálpað áður. Það sem virtist einfalt í gær getur virst ómögulegt í dag. Með stuttri sjálfsskoðun geturðu skoðað hvað gæti veitt þér styrk þegar sólin hverfur. Staldraðu við og kannaðu þín bjargráð: