13. október 2026

Þegar myrkrið verður svo djúpt að lífið sjálft verður spurning

Það er ekki auðvelt að lesa Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson. Bókina leggur maður ekki frá sér að loknum lestri og heldur áfram eins og ekkert hafi gerst. Frásögnin situr í lesandanum, mögulega vegna þess að hér er ekki verið að skrifa um vanlíðan úr fjarlægð heldur beint frá kjarnanum – Gyrðir deilir erfiðri lífsreynslu og dregur lítið undan. Útgefandinn kallar bókina lífsreynslusögu og lýsir henni sem átakanlegri og einlægri frásögn. Það er lýsing sem hittir naglann á höfuðið.

Í bókinni segir Gyrðir frá tímabili þar sem þunglyndi, kvíði og djúp vanlíðan tóku yfir. Hann lýsir því hvernig hugurinn varð að stað sem erfitt var að komast frá og hvernig dauðinn varð smám saman hluti af hugsunum hans. Gyrðir segir frá sjálfs­­vígstilraunum sínum og dvölum á geð­­­­­deildum, sem veitir lesandanum innsýn í heilbrigðiskerfið með augum þjónustuþegans. Við verðum vitni að sam­­skiptum hans við lækna og annað starfsfólk sem ganga misvel.

Það er sérstaklega átakanlegt við lesturinn að sjá hversu lítið bil er í rauninni á milli þess að horfa á geðræna erfiðleika utan frá og þess að vera allt í einu staddur í miðjum storminum. Fyrir þann sem stendur við hliðina á manneskju í mikilli vanlíðan getur verið erfitt að vita hvað á að gera. Hvenær á maður að grípa inn í? Hvenær á maður að hlusta?

Hvað segir maður við manneskju sem sér enga leið áfram? Og hvernig tekst manni að standa við hliðina á henni án þess að missa sjálfan sig?

Það er líka erfitt að lesa lýsingarnar á samskiptum við heilbrigðiskerfið. Þegar manneskja er algjörlega komin í þrot með líf sitt skiptir máli að henni sé ekki aðeins sinnt sem sjúklingi heldur einnig að hlustað sé á hana sem manneskju. Reynsla Gyrðis þarf ekki að eiga við um allt geðheilbrigðiskerfið en það eru fleiri sögur sem benda til þess að ýmislegt sé brotið innan kerfisins. Hvernig tekur þetta kerfi á móti fólki og er hlustað á þarfir þess og óskir?

Það er mikill styrkur bókarinnar að Gyrðir er ekki að fegra reynsluna. Bókin er blátt áfram og oft mjög átakanleg lesning. Myrkrið verður afar raunveru­­legt við lesturinn og þjáningin ljóslifandi. Það er ekki hægt að stytta sér leið ætli maður að svara flóknum spurningum.

Ótíð í víti er þó ekki aðeins bók um dauðann. Hún er líka bók um að lifa af. Um að vera áfram þegar maður sér ekki tilganginn í því. Um að komast í gegnum tímabil sem virðist óyfirstíganlegt.

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram