


Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan.
Að vinnunni með nemendunum lokinni verður boðið til samtals þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.
Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.
Á þessa fundi eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.
Mánudagurinn 7. september kl. 19:30 – Samkomuhús Grundarfjarðar
Þriðjudagurinn 8. september kl. 13:00 – Félagsheimilið á Hólmavík
Miðvikudagurinn 9. september kl. 19:30 – Edinborgarhúsið á Ísafirði
Fimmtudagurinn 10. september kl. 19:30 – Patreksskóli á Patreksfirði