23. apríl 2025

Tónleikarnir Geggjað í Iðnó til styrktar Geðhjálp

Skúli Helgason hélt þann 10. apríl sl. upp á 60 ára afmæli sitt með því að blása til tónleika í Iðnó. Tónleikarnir fengu nafnið Geggjað og fram komu listamennirnir: Mugison, GDRN, Ragga Gísla ásamt hljómsveit, Emmsjé Gauti, Inspector Spacetime og Ra:tio.

Uppselt var á tónleikana og sóttu þá um 300 manns. Allur ágóði af tónleikahaldinu rann í Styrktarsjóð geðheilbrigðis auk þess sem safnað var framlögum frá bakhjörlum og fyrirtækjum. Niðurstaðan var sú að 3,4 milljónir króna söfnuðust í tengslum við framtakið.

Skúli mætti í dag á skrifstofu Geðhjálpar og færði Svövu Arnardóttur, formanni Geðhjálpar og stjórnar styrktarsjóðsins, afrakstur þessa frábæra framtaks. Fjárhæðin mun nýtast til að styrkja verkefni einstaklinga, frjálsra félagasamtaka og stofnana sem tengjast eflingu geðheilbrigðis barna og ungmenna á Íslandi.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram