19. nóvember 2026

Umsögn landssamtakanna Geðhjálpar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (grunnmat, sjúkradagpeningar o.fl.)

Óásættanlega stuttur samráðsfrestur

Landssamtökin Geðhjálp gera alvarlegar athugasemdir við þann afar skamma frest sem gefinn er til að skila umsögn um fyrirliggjandi frumvarp. Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda 12. nóvember 2026 og umsagnarfrestur rennur út 19. nóvember, aðeins sjö dögum síðar. Hér er um að ræða umfangsmiklar breytingar á almannatryggingakerfinu sem hafa bein áhrif á framfærslu og réttindi þúsunda einstaklinga, þar á meðal fólks með langvarandi geðrænan vanda. Að mati Geðhjálpar er óásættanlegt að hagsmunasamtökum og þeim einstaklingum sem breytingarnar varða sé aðeins gefin ein vika til að kynna sér frumvarpið og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Það vekur enn fremur athygli að verið er að breyta kerfi sem tók gildi 1. september 2025 og hefur því aðeins verið í framkvæmd í rúmlega fjórtán mánuði. Þá er kaflinn um mat á áhrifum í frumvarpinu ófullgerður og merktur „Í vinnslu“. Það er óeðlilegt að óskað sé eftir umsögnum um jafn umfangsmiklar breytingar án þess að mat á áhrifum liggi fyrir. Geðhjálp telur nauðsynlegt að umsagnarfrestur verði framlengdur og þetta mat birt áður en frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi.

Stytting greiðslutímabils úr sjö árum í þrjú

Geðhjálp lýsir verulegum áhyggjum af þeirri tillögu að stytta hámarkstíma sjúkra- og endurhæfingargreiðslna úr sjö árum í þrjú ár. Samtökin gera sér grein fyrir því að meirihluti einstaklinga þarf ekki svo langan tíma til endurhæfingar. Það réttlætir hins vegar ekki að útiloka þann möguleika fyrir einstaklinga sem vegna flókins og langvarandi heilsubrests þurfa lengri tíma. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins hafa 17,4% greiðsluþega verið lengur en 36 mánuði í endurhæfingu.

Geðrænn vandi getur verið sveiflukenndur og endurhæfing ekki endilega línulegt ferli. Einstaklingur getur tekið mikilvægum framförum, orðið fyrir tímabundnu bakslagi og síðan haldið áfram að ná árangri. Slíkt ferli getur tekið mörg ár. Í greinargerðinni er bent á að líkur á örorkulífeyri aukist eftir því sem endurhæfingartíminn lengist. Það sannar hins vegar ekki að lengri endurhæfing sé árangurslaus eða að stytting hennar bæti árangur. Líklegra er að þeir sem glíma við flóknasta vandann þurfi lengri tíma. Þá er það að einstaklingur fái ekki örorkulífeyri að lokinni endurhæfingu ekki sjálfkrafa sönnun þess að hann hafi náð starfsgetu.

Geðhjálp leggur til að áfram verði heimilt að framlengja greiðslutímabil á grundvelli einstaklingsbundins faglegs mats þegar áframhaldandi endurhæfing er nauðsynleg og getur skilað árangri.

Flutningur verkefna til Tryggingastofnunar og skortur á mati á áhrifum

Landssamtökin Geðhjálp lýsa áhyggjum af því að Tryggingastofnun sé ætlað að taka við umfangsmiklum nýjum verkefnum án þess að fyrir liggi fullnægjandi upplýsingar um hvernig stofnunin verði í stakk búin til að sinna þeim. Hér er meðal annars um að ræða umsýslu sjúkradagpeninga, framkvæmd grunnmats, endurmat á greiðslurétti og rekstur upplýsingakerfa.

Í frumvarpinu er ekki að finna fullbúið mat á áhrifum breytinganna. Þar kemur hvorki fram hversu mörg stöðugildi þurfi til að sinna þessum verkefnum né hvaða fjármunir hafi verið tryggðir til innleiðingarinnar. Ekki liggur heldur fyrir hvernig tryggja eigi að aukið álag á Tryggingastofnun leiði ekki til lengri afgreiðslutíma eða rofs á framfærslu einstaklinga. Geðhjálp telur nauðsynlegt að áður en frumvarpið verður afgreitt liggi fyrir ítarleg mannafla-, kostnaðar- og áhættugreining ásamt tímasettri innleiðingaráætlun. Sérstaklega þarf að tryggja að tafir í stjórnsýslu verði aldrei til þess að einstaklingar með langvarandi eða alvarlegan heilsubrest standi uppi án framfærslu.

Það verður að gera þá kröfu til stjórnvalda að fjármögnun, fagleg geta og tæknilegir innviðir séu tryggðir áður en nýjar skyldur eru lagðar á stofnunina. Réttindi fólks mega ekki ráðast af því hvort stjórnsýslan hafi nægilegt svigrúm til að afgreiða mál þess.

Grunnmat, biðtími og endurtekin langvarandi heilsubrestur

Samkvæmt frumvarpinu verður grunnmat Tryggingastofnunar forsenda sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Matið gildir í allt að tólf mánuði og greiðslur geta fallið niður ef endurnýjuð umsókn og niðurstaða endurmats liggja ekki fyrir. Geðhjálp telur nauðsynlegt að lögfesta að greiðslur haldi áfram meðan endurmat er til meðferðar, enda hafi einstaklingur sinnt þeim skyldum sem með réttu má gera til hans. Fólk má ekki missa framfærslu vegna tafa sem það ber enga ábyrgð á.

Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að greiðslur vegna biðar eftir meðferð eða endurhæfingu geti að hámarki staðið í sex mánuði. Einstaklingar hafa hins vegar enga stjórn á biðlistum heilbrigðiskerfisins og mega ekki gjalda fyrir skort á þjónustu. Jafnframt er lagt til að nýtt greiðslutímabil vegna sama heilsubrests geti fyrst hafist þegar þrjú ár eru liðin frá síðustu greiðslu. Þetta getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk með langvinnan og endurtekinn geðrænan vanda sem nær bata og snýr aftur til vinnu en veikist síðar að nýju.

Fjárhagsáhyggjur og óvissa um framfærslu geta haft alvarleg áhrif á geðheilsu einstaklinga, ekki síst þeirra sem þegar glíma við geðrænan vanda. Það er því grundvallaratriði að tryggja fjárhagslegt öryggi og samfellu í framfærslu meðan á endurhæfingu stendur, enda getur rof á greiðslum aukið vanlíðan, grafið undan bata og jafnvel komið í veg fyrir að endurhæfing skili tilætluðum árangri.

Heildræn þjónusta og persónuvernd

Geðhjálp leggur áherslu á að aðgreining sjúkragreiðslna og endurhæfingargreiðslna leiði ekki til þess að fólk falli á milli kerfa. Fyrir einstaklinga með geðrænan vanda eru meðferð, félagslegur stuðningur og starfsendurhæfing oft samtvinnuð ferli sem þurfa að geta farið fram samhliða. Jafnframt þarf að tryggja að grunnmat taki mið af félagslegum aðstæðum, áföllum og sveiflukenndum heilsubresti en byggist ekki eingöngu á stöðluðum mælikvörðum.

Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir umfangsmikilli vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga, meðal annars um einstaklinga sem ekki fá greiðslur frá Tryggingastofnun. Nauðsynlegt er að skýrt verði gerð grein fyrir tilgangi slíkrar upplýsingasöfnunar, nauðsyn hennar og hvernig persónuvernd verði tryggð.

Lokaorð

Landssamtökin Geðhjálp styðja markmið um snemmtæka íhlutun, samfellda þjónustu og árangursríka endurhæfingu. Samtökin vara hins vegar við því að breytingar sem ætlað er að einfalda kerfið leiði til skerðingar á réttindum þeirra sem þurfa mestan stuðning. Geðhjálp hvetur ráðuneytið til að framlengja umsagnarfrestinn, birta fullbúið mat á áhrifum og endurskoða þau ákvæði frumvarpsins sem geta leitt til skerðingar á framfærslu eða aðgengi að endurhæfingu. Jafnframt verði tryggt að Tryggingastofnun hafi nauðsynlega fjármuni, mannafla og innviði áður en ný verkefni verða flutt til hennar.

Grundvallaratriðið er að almannatryggingakerfið taki mið af þörfum fólks en ekki að fólk þurfi að laga veikindi sín og endurhæfingu að tímamörkum kerfisins.

Fyrir hönd Landssamtakanna Geðhjálpar,
Svava Arnardóttir formaður

Geðhjálp
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, 108 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram