
Í febrúar stofnuðu landssamtökin Geðhjálp félagasamtökin Skjólshús athvarf með það að markmiði að opna skjólshús í grónu hverfi í Reykjavík. Geðhjálp lagði hinum nýju samtökum til 110 m.kr. sem stofnframlag og skuldbundu sig til að leggja rekstrinum til 25-50 m.kr. árlega næstu þrjú árin. Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin lögðu verkefninu til 50 m.kr. stofnframlag á móti. Fjárfest var í húsnæði í efra-Breiðholti í febrúar með það að markmiði að opna skjólshús nú í haust. Er skemmst frá því að segja að sérlega hörð andstaða íbúa, áður en var búið að segja frá því opinberlega að þetta tiltekna húsnæði hefði verið keypt, varð til þess að samtökin urðu að hverfa frá áformum sínum.
Fordómar gagnvart geðrænum vanda verða ekki til í einhverju tómarúmi. Þeir spretta upp úr jarðvegi skilningsleysis, einstaklingshyggju og fáfræði. Áherslur samfélagsins eru því miður ekki á samkennd og umburðarlyndi. Hvað er mikilvægast og hvað er best fyrir okkur sem manneskjur er ekki í forgrunni. Fjárlagafrumvarp ársins 2027 þar ekki undanskilið.
Landssamtökin Geðhjálp fagna auðvitað hverri krónu sem sett er í geðheilbrigðismál. Það breytir því hins vegar ekki að árálangt fjársvelti við málaflokkinn hefur skilið eftir mjög stóra innviðaskuld sem ekki verður bætt fyrir með smáskammta lækningum. Það er í raun ekkert í fjárlagafrumvarpi ársins sem bendir til þess að stjórnvöld ætli sér að setja geðheilbrigðismál á oddinn. Hér á eftir eru „geðheilsuvísar“ sem okkur sem samfélagi ber að taka alvarlega.
Hlutfall framhaldsskólanema á landinu öllu sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða
lélega: 43,3%
Hlutfall framhaldsskólanema sem segist oft hafa verið einmana sl. viku: 29%
Hlutfall barna í 4. bekk sem gengur oft eða alltaf vel að sofna á kvöldin: 65,9%
Hlutfall nemenda í 7. bekk sem finnur hér um bil daglega fyrir kvíða: 12,2%
Hlutfall barna í 8.-10. bekk sem merkja við á bilinu 8-10 á lífsánægjukvarða Cantrills (á
kvarðanum 0-10): 57,9%
Hlutfall barna í 4.-5. bekk sem notaði samfélagsmiðla sl. 7 daga: 80%¹
Árið 2016 tóku 15,9% barna á aldrinum 6-17 ára einhverskonar tauga- og geðlyf. Árið 2025 var hlutfallið 19,6%.
Það er 23,3% aukning.
Árið 2016 tóku 5,1% barna á aldrinum 6-17 ára þunglyndislyf. Árið 2025 var hlutfallið 6,6%
Það er tæplega 30% aukning.
Árið 2016 tóku 7,6% barna á aldrinum 6-17 ára ADHD lyf. Árið 2025 var hlutfallið 12,7%
Það er 67% aukning.
Tilkynningar um áfengisnotkun barna jókst um 72% frá 2022 til 2024 og ofbeldishegðun um
35%.
27% kvenna á aldrinum 18–44 ára nota þunglyndislyf.
Tæplega 40% íbúa hjúkrunarheimila er gefið sterk geðlyf (geðrofslyf) að staðaldri.
Í maí 2025 kynnti ríkisstjórn Danmerkur og allir flokkar á danska þinginu sameiginlega fullfjármagnaða 10 ára áætlun í geðheilbrigðismálum.² Áætlunin er niðurstaða ítarlegrar greiningarvinnu á öllu kerfinu og þjónustu við alla aldurshópa á öllum stjórnsýslustigum. Ólíkt íslenskum aðgerðaráætlunum í geðheilbrigðismálum, sem Alþingi samþykkir reglulega hvar aðeins 10% aðgerða eru fjármagnaðar, fylgir fjármagn þessari dönsku áætlun. Framlög til geðheilbrigðismála í Danmörku munu aukast árlega um 19,2 milljarða eða um 35%. Á síðasta ári settu Danir um 278 milljarða í málaflokkinn, sem heimfært á fólksfjölda á Íslandi, er rétt um 19 milljarðar. Til samanburðar, sýna tölur fengnar í skýrslu Ríkisendurskoðunar 2022, að áætla má að framlög til geðheilbrigðismála hafi í fyrra verið um 12,7 milljarðar.³ Þetta þýðir að framlög til málaflokksins eru 54% hærri í Danmörku en hér og verða 79% hærri árið 2030 ef Ísland heldur áfram hækka framlög til málaflokksins aðeins um hluta hækkunar vísitölu neysluverðs. Miðað við smæð Íslands ættu framlög til geðheilbrigðismála í rauninni að vera 15% hærri en í Danmörku þar sem stærðarhagkvæmnin er okkur ekki í hag.
Það er vert að hafa það í huga að gríðarlegar endurbætur á húsnæði geðheilbrigðiskerfisins hafa staðið yfir sl. áratug í Danmörku á landsvísu og hafa þannig á annan tug nýrra geðdeilda verið opnaðar og gömlum úreltum deildum verið lokað. Einnig hefur húsnæði nærþjónustunnar verið endurbætt. Þessar miklu fjárfestingar eru fyrir utan þær tölur sem áður var vitnað til. Úrræði á vegum sveitarfélaganna í Danmörku eru bæði fleiri og fjölbreyttari en við þekkjum í sveitarfélögum á Íslandi. Sú staðreynd gerir innviðaskuldina á Íslandi enn stærri. Auðvitað er húsnæði ekki það mikilvægasta þegar kemur að geðmeðferð, heldur innihald meðferðarinnar, en gott umhverfi getur haft talsvert að segja og þetta skiptir því verulegu máli. Á Íslandi hafa bæði endurbætur húsnæðis og innleiðing nýrra meðferða verið sett neðarlega á forgangslista í áratugi. Vissulega er á döfinni að byggja nýja geðdeild en hún er ekki risinn enn og skóflustungan ekki tímasett.
Í dönsku áætluninni er sérstök áhersla á börn og ungmenni þar sem tilgreindar aðgerðir eru fjölmargar. Áherslan er á fyrirbyggjandi úrræði og snemmtæka íhlutun í nærsamfélaginu. Meðal þeirra atriða sem sérstaklega er gefinn gaumur eru: Aðgengileg meðferðarúrræði í nærsamfélagi barna án innlagnar, fjölgun og styrking lágþröskuldaúrræða eins og „headspace“ fyrir börn, stórauka á stuðning við foreldra og forráðamenn og auka stuðning innan skólakerfisins á öllum skólastigum. Og aftur er vert að minna á að þetta eru fjármagnaðar aðgerðir ekki óskalisti eins og aðgerðaáætlanir í geðheilbrigðismálum eru hér á landi.
Á Íslandi hefur mikið verið fjallað um stöðu einstaklinga með taugaþroskaraskanir innan geðheilbrigðiskerfisins og þá sérstaklega einstaklinga með einhverfu greiningar. Þjónusta við þennan hóp hefur verið lítil sem engin og sveitarfélögin og ríkið hafa því miður látið deilur um kostnaðarskiptingu koma niður á þjónustu við hópinn. Einstaklingum með einhverfu greiningu hefur þannig beinlínis, vegna greiningarinnar, verið vísað frá geðdeildum og geðheilsuteymum vegna fötlunar en frá félagsþjónustu vegna geðræns vanda. Í dönsku áætluninni er gert ráð fyrir stórátaki innan geðheilbrigðiskerfisins fyrir þennan hóp og hann tekinn sérstaklega út fyrir sviga. Opnaðar verða nýjar geðheilsumiðstöðvar sem sérhæfa sig í meðferð einhverfra og einstaklinga með ADHD greiningar. Það ber að hafa í huga að áður en Danir samþykktu að ráðast í þessar aðgerðir var þjónustan við þennan hóp langtum markvissari og betri en við eigum að þekkja hér á landi. Í skýrslu sem kom út í fyrra um málefni fullorðinna einhverfra segir m.a. í niðurstöðum:
Kortlagning starfshópsins sýnir að þjónusta við fullorðna einhverfa er víða í boði en er oft ómarkviss, ósamræmd og aðeins aðgengileg fyrir hluta hópsins. Þjónustu- og fagaðila skorti gjarnan þekkingu á sértækum þörfum fullorðinna einhverfra og aðgengi að þjónustu geti verið flókið, ósveigjanlegt og oft miðað við forsendur annarra hópa.⁴
Það sem kemur fram í þeim gögnum sem hér er vísað til er að geðheilbrigðismál eru ekki í forgangi á Íslandi. Farsæld og önnur góð fyrirheit í bland við fjölmarga vinnuhópa hefur litlu skilað. Geðheilsuvísar um stöðu barna á Íslandi eru dæmi um einkenni ákveðins ástands. Orsakirnar liggja víða en einkennin beinlínis öskra á að brugðist verði við án tafar. Við höfum hingað til forgangsraðað skakkt og ef settir hafa verið fjármunir í geðheilbrigðiskerfið þá hefur það að nær öllu leyti farið í aðgerðir til höfuðs einkennum en ekki orsökum ástandsins. Við höfum vanfjármagnað geðheilbrigðiskerfið um langt árabil og afleiðingar þess eru bæði alvarlegar og þjóðhagslega kostnaðarsamar. Stjórnvöld gáfu það út fyrir nokkrum árum að kostnaður samfélagsins vegna áfalla barna í æsku væri um 100 ma.kr. árlega. Við getum ekki lengur „reddað“ okkur frá þessum vanda með viku þjóðarátaki gegn vímuefnum, stólað á frjáls félagasamtök eða sópað vandanum undir teppið með því t.d. að senda börn á einkareknar stofnanir sem fá falleinkunn þá sjaldan eftirliti er sinnt. Með því erum við í besta falli að fresta vanda en líklegar að auka hann verulega með tilheyrandi harmi og gríðarlegu fjárhagslegu tjóni fyrir samfélagið. Í málefnum skynsegin fólks á öllum aldri hefur hver starfshópurinn á eftir öðrum skilað inn tillögum en við erum enn að henda einstaklingum á milli kerfa af því að þeir eru metnir ýmist „fatlaðir“ eða „geðveikir“ eftir því hvort það er ríkið eða sveitarfélagið sem metur „vandann“.
Við verðum að fara fyrir ofan fossinn, að orsökum ástandsins, í stað þess að halda áfram á þessari leið. Einbeitum okkur að orsökunum – við gætum t.d. byrjað á þessu:
Virðingarfyllst,
Stjórn Landssamtakanna Geðhjálpar
¹Mælaborð lýðheilsuvísa embættis landlæknis,
https://app.powerbi.com/view?r=eyJrIjoiYjg0NGVlMmItYTVhYy00N2UzLThjMzItZmQ0YzkyNjBhN2IzIiwidCI6IjRkNzYyYWMwLTYyMDUtNDJjZS1iOTY0LWMzYjg5NThmZDRhOSIsImMiOjh9
²„Regeringen fuldender 10-årsplan for psykiatrien med nyt udspil.” Innanríkis- og heilbrigðisráðuneyti Danmerkur.
https://regeringen.dk/nyheder/2025/regeringen-fuldender-10-aarsplan-for-psykiatrien-med-nytudspil-1/
³„Geðheilbrigðisþjónusta – stefna, skipulag, kostnaður og árangur.“ Ríkisendurskoðun.
https://www.rikisend.is/skyrslur/nanar?id=976
⁴„Málefni fullorðinna einhverfra.“ Stjórnarráðið.
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/10/01/Starfshopur-um-malefni-fullordinna-einhverfra-skilar-tillogum-til-radherra-/