Barna- og unglingageðdeild Landspítala veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri með samsettan geðrænan vanda margvíslega sérfræðiþjónustu.
Á barna- og unglingageðdeild eru göngu-, dag- og legudeild. Á deildunum er unnið í þverfaglegum teymum að greiningu og meðferð, og einnig er veitt ráðgjöf og fræðsla. Þjónustan tekur mið af þörfum barna og fjölskyldum þeirra.
Ef grunur er um geðrænan vanda hjá barni eða unglingi byrja foreldrar oft á því að leita til fagfólks í nærumhverfi sínu, eins og á heilsugæslu, félagsþjónustu eða sálfræðiþjónustu skóla, sem geta vísað í þjónustuna.
Legudeild: 543 4320
Göngudeild: 543 4300
Vefsíða: https://island.is/s/landspitali/barna-og-unglingageddeild/bugl-thjonusta
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið