Átröskunarteymið er sérhæft teymi göngudeildar sem hefur aðkomu að málum þar sem líklegt er um átröskun sé að ræða hjá barni eða unglingi. Átröskunarteymið veitir bæði greiningu og meðferð:
Meðferðin miðar að því að hjálpa barni/unglingi að takast á við veikindin með stuðningi foreldra og fagfólks
Lögð er áhersla á að barnið og foreldrarnir læri nýjar og betri leiðir til að takast á við átröskunina og fái betri innsýn í hvaða þættir hindra bata.
Leitast er við að efla sjálfsmynd, líkamsmynd, félagslega færni og samskipti í fjölskyldu í því skyni að bæta líðan og lífsgæði til lengri tíma.
Sími: 543 4600
Netfang: atroskun@landspitali.is
Vefsíða: island.is/s/landspitali/atroskunarteymi-barna-og-unglingageddeilar
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið