Á sjúkrahúsinu Vogi er lögð áhersla á fíknsjúkdóm sem margþátta sjúkdóm sem hægt er að meðhöndla. Meðferðin er byggð á læknisfræðilegum greiningum, afeitrun með fagfólki, lyfjameðferð og einstaklingshæfðri sálfélagslegri meðferð. Meðferðin grípur inn í fylgikvilla, þ.e. líkamlega, geðræna og félagslega.
Skimað er fyrir smitsjúkdómum, notuð er sérhæfð viðtalstækni fyrir mismunandi þarfir og einnig er dagleg fræðsla og hópmeðferðir sem eru kynja- og aldursskiptar.
Netfang: vogur@saa.is
Vefsíða: https://www.saa.is/is/medferd-til-betra-lifs/medferdastadir/vogur
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið