Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum sinna meðferð barna, ungmenna og fullorðinna. Sálfræðingar starfa sem hluti af þverfaglegum teymum innan heilsugæslu og í samvinnu við skóla og félagsþjónustu.
Læknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður vísa til sálfræðinga innan Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Tilvísanir utan stofnunarinnar koma frá sérfræðingum á öðrum stofnunum, til dæmis félagsþjónustu og barnavernd.
Vefsíða: https://www.hsa.is/thjonusta/gedheilbrigdi
Staðsetning: Austurland