25. október 2022

Meðvirkni: „Hvað er það eiginlega?“ – Anna Sigríður Pálsdóttir ráðgjafi

Geðhjálp mun standa fyrir fræðsludagskrá um geðheilbrigðismál í vetur. Erindin verða haldin í sal Hlutaverkaseturs í Borgartúni 1, 105 Reykjavík kl. 20:00 og fara fram einn þriðjudag í mánuði. Boðið verður upp á kaffi og spjall að fyrirlestrinum loknum. Annað fræðsluerindi vetrarins var haldið 25. október þar sem Anna Sigríður Pálsdóttir ráðgjafi fjallaði um meðvirkni.

Um fræðsluerindið

Meðvirkni er alvarlegt vandamál sem snertir flestalla strengi lífs þeirra sem við hana etja. Hún er falin, sorgleg, öflug, lamandi, eyðandi og vekur upp fjölmargar vondar tilfinningar innra með okkur. Hugtakið meðvirkni er mikið notað og áhugi fyrir því hefur aldrei verið meiri. Þó svo að margir telji sig vita hverjar birtingamyndir meðvirkni geta verið þá vita fáir hver raunveruleg orsök hennar er og hvað hún hefur mikil áhrif á öll okkar sambönd, samskipti og líðan.

Meðal þeirra tilfinninga, upplifana og erfiðleika sem meðvirkni getur skapað eru skömm, öryggisleysi, undanlátsemi, framtaksleysi, þunglyndi, sektarkennd, samskiptaörðugleikar, vandi í samböndum, ótti við álit annarra, stjórnsemi, fíknir, tómleiki og lágt sjálfsmat svo eitthvað sé nefnt.

Geðhjálp
Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík
Opið mán - fim: 9 - 15 og  fös: 9 - 12
Styrktarreikningur: 0357-22-2095 | kt: 531180-0469
Geðhjálp 2009 - 2020 Allur réttur áskilinn
Gamli vefur Geðhjálpar
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram