Geðhjálp stendur fyrir fræðsludagskrá um geðheilbrigðismál í vetur. Erindin verða haldin í sal Hlutaverkaseturs í Borgartúni 1, 105 Reykjavík kl. 20 og fara fram einn þriðjudag í mánuði. Boðið verður upp á kaffi og spjall að fyrirlestrinum loknum.
Fjórða fræðsluerindi vetrarins fór fram 17. janúar þar sem Elísabet Ýrr Steinarsdóttir fjölskyldufræðingur fjallaði um samskipti foreldra og barna.
Krefjandi hegðun og skapofsaköst ungra barna er eitt af því erfiðasta sem foreldrar upplifa, það er slítandi, erfitt og oft á tíðum mjög mikill streituvaldur sem getur haft áhrif á samskipti í fjölskyldum.
Með bættum samskiptum og sjálfsskoðun má stuðla að góðri tengslamyndun, minni streitu og meiri hamingju í foreldrahlutverkinu. Farið verður yfir tengslamyndun, mögulega streituvalda, samskipti, heilbrigð mörk, bjargráð og sjálfsmildi.