Aflið veitir ráðgjöf til þolenda ofbeldis og aðstandenda þeirra. Aflið eru samtök sem hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir hvers konar ofbeldi. Hægt er að fá bæði einstaklingsráðgjöf í fjarviðtali eða á staðnum og taka þátt í hópastarfi. Aðstandendur eru velkomnir. Það kostar ekkert að nýta sér þjónustu Aflsins.
Í einstaklingsviðtölum er veittur stuðningur. Hugmyndafræði Aflsins byggir á áfalla- og þolendamiðaðri þjónustu. Innan þeirrar hugmyndafræði eru ráðgjafar meðvitaðir um algengi áfalla og þau áhrif sem áföll og erfið reynsla hefur á virkni einstaklinga. Markmið áfallamiðaðrar þjónustu er ekki að vinna með áföllin sjálf heldur að vinna með erfiðleika og áskoranir einstaklingsins sem komið hafa til vegna áfalla. Allir ráðgjafar Aflsins eru háskólamenntaðir einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn.
Aflið er í Aðalstræti 14 á Akureyri. Þjónusta er einnig veitt á Blönduósi, Egilsstöðum, Húsavík, Reyðarfirði. Opnunartímar: sími opinn frá 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga, lokað á föstudögum.
Sími: 461-5959
Netfang: aflidak@aflidak.is
Vefsíða: www.aflidak.is
Staðsetning: Norðurland