Bergið er ráðgjafarsetur fyrir ungmenni upp að 25 ára aldri. Það veitir ungmennum einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning. Markmiðið er að bæta líðan og efla virkni ungmenna í samfélaginu. Í Berginu geta einstaklingar fengið ókeypis viðtal við fagaðila sem kortleggur vanda, veitir stuðning, fræðslu og ráðgjöf um þjónustu í samfélaginu og brúar brýr milli kerfa.
Tekið er á móti einstaklingum í húsakynnum Bergsins að Suðurgötu 10 alla virka daga frá kl. 13-18, auk þess sem vefspjall Bergsins er opið alla virka daga klukkan 13-17.
Sími: 571 5580
Vefsíða: https://bergid.is/
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið