Frú Ragnheiður er sérútbúinn bíll sem sjálfboðaliðar aka um götur borgarinnar og veita skaðaminnkandi heilbrigðisaðstoð og nálaskiptaþjónustu.
Í Frú Ragnheiði er starfrækt hjúkrunarmóttaka þar sem einstaklingar geta komið og fengið heilbrigðisaðstoð svo sem aðhlynningu sára, umbúðaskipti, blóðþrýstingsmælingu, saumatöku og almenna heilsufarsráðgjöf. Frú Ragnheiður er á ferðinni alla daga nema laugardaga frá kl 18-21.
Sími: 788-7123
Vefsíða: https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/skadaminnkun/
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið